Stjórnvöld eiga að skila öryrkjum því sem þeim ber
Fulltrúar Öryrkjabandalagsins í starfshópi um endurskoðun almannatryggingalaga, sem velferðarráðherra skipaði á síðasta ári, ætla ekki að koma aftur til samstarfs við hópinn fyrr en gengið er að kröfum þeirra.
Ekki er um formlega úrsögn að ræða og munu fulltrúarnir áfram fylgjast með framvindu mála. Fulltrúarnir, Sigríður Hanna Ingólfsdóttir og Garðar Sverrisson, gengu af fundi hópsins 13. janúar eftir að hafa lagt fram bókun þess efnis að Öryrkjabandalagið (ÖBÍ) myndi ekki taka þátt í þeirri vinnu sem fram færi í hópnum á meðan ekki væri tekið tillit til sjónarmiða bandalagsins.
Krafa ÖBÍ er að stjórnvöld skili öryrkjum sem fyrst því sem þeim ber samkvæmt lögum um almannatryggingar áður en hugað verður að uppstokkun á núverandi bótakerfi. Þeir vilja að frítekjumörk og tekjuviðmið verði leiðrétt og þær skerðingar sem voru settar á um mitt ár 2009 dregnar til baka. „Án leiðréttinga í þá veru er ábyrgðarlaust af hálfu ÖBÍ að taka frekari þátt í vinnu við svonefnda endurskoðun almannatryggingalaga, enda sé henni augljóslega ætlað að festa í sessi þær alvarlegu skerðingar sem stjórnvöld hafa kosið að láta öryrkja bera,“ segir í bókuninni.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag er Lilja Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ, ekki bjartsýn á að hlustað verði á þessar kröfur. „Við viljum að lög um almannatryggingar verði endurskoðuð en ekki eins og vinnan fer nú fram. Við höfum tekið virkan þátt í starfi nefndarinnar frá því í maí í fyrra og teljum fullreynt að ná okkar sjónarmiðum í gegn innan starfshópsins.“
Innlent »
- Svartir sauðir á hálendinu
- Mæling á PSA ekki áreiðanleg
- Vilja starfshóp um póstverslun
- Icesave hefði sett Ísland á hausinn
- Tíðinda að vænta innan tíu daga
- Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð
- Lagði mat á vegslóða
- Rannsókn nauðgunarmála lokið
- Óljóst um hvað málið snýst
- Selur fylgist með skútunum
- Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi
- Þremur sagt upp hjá Becromal
- Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Forstjóra FME sagt upp störfum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Innlent Hætta þátttöku í starfshópi ráðherra
- Þriðjudagur, 29. nóvember 2011, Innlent Öryrkjar senda þingmönnum bréf
- Mánudagur, 12. desember 2011, Innlent Ekki hagkvæmt að sameina á ný
- Fimmtudagur, 18. ágúst 2011, Innlent Vilja fund heilbrigðisnefndar
- Föstudagur, 25. nóvember 2011, Innlent Verulegur ávinningur af því að þiggja vinnu
-
Perlan fái hlutverk við hæfi
-
Leita enn að líkum um borð
-
Viktoría fer heim af spítalanum
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku




































