Rætt verði við Samfylkinguna án VG
Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, hafði samband við Guðríði Arnardóttur, oddvita Samfylkingar, um möguleika á viðræðum um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn, gegn því að Samfylkingin léti af samspyrðingi sínum við Vinstri græna í þeim viðræðum. Að sögn Ármanns fékk hugmyndin dræmar viðtökur.
„Við erum á fullu við að reyna að koma þessu eitthvað áfram. Það eru ekki orðnir margir kostir í stöðunni. Sjálfstæðisflokknum er stillt upp við vegg um að hann verði að tala við tvo flokka. Það gengu allir flokkar óbundnir til kosninga og óeðlilegt að mynda kosningabandalag eftir á,“ segir Ármann en engir formlegir viðræðufundir hafa verið ákveðnir í kvöld eða á morgun. „En vissulega eru menn að tala saman.“
Meirihluti hefur ekki verið starfandi í Kópavogi í nærri tvær vikur, eftir að upp úr samstarfi Samfylkingar, VG, Næstbesta flokksins og lista Kópavogsbúa slitnaði vegna ágreinings um hvernig að uppsögn bæjarstjórans var staðið, Guðrúnar Pálsdóttur.
Eftir sem áður er Guðrún enn starfandi sem og forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs. Nefndir bæjarins hafa einnig starfað þrátt fyrir meirihlutaleysið. Ármann segir að vitanlega geti þetta ástand ekki varað til lengdar og nauðsynlegt að bæjarfulltrúar komi sér saman um nýjan meirihluta.
Ármanni hugnast ekki tillaga Hjálmars Hjálmarssonar, Næstbesta flokknum, um að bæjarfulltúarnir 11 starfi saman í nokkurs konar „þjóðstjórn“, og að fulltrúum í nefndum verði fjölgað úr fimm í sjö. Þá lagði Hjálmar einnig til að Sjálfstæðisflokkurinn fengi formennsku í bæjarráði og Samfylkingin varaformennsku, og að oddvitar allra flokka myndu hittast á vinnufundi degi fyrir fund bæjarstjórnar, í stað meirihlutafundar áður.
„Ég hef ekki góða sannfæringu fyrir þessari tillögu og tel að það yrði losarabragur á þessari vinnu. Ég sé ekki hvernig þeir sem segjast ekki geta unnið með okkur í meirihluta ætla að vinna með okkur í einhvers konar þjóðstjórn. Ég tel að í stórum sveitarfélögum eins og Kópavogi, því næststærsta á landinu, geti svona samstarf trauðla gengið upp, þó að það geti kannski gengið í smærri sveitarfélögum,“ segir Ármann um tilllögu Hjálmars, sem fékkst ekki rædd á fundi bæjarstjórnar í gær.
„Menn verða bara að fara að mynda meirihluta og koma aftur á einhverjum stöðugleika, þannig að við lendum ekki í þeim sama glundroða sem er núna í stjórnmálum á landsvísu. Við höfum ekki verið að raska starfi nefndanna og þetta er ekkert úrslitaatriði í dag eða á morgun,“ segir Ármann.
Tengdar fréttir — Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
Bloggað um fréttina
-
Magnús Helgi Björgvinsson Samfylking er búin að lýsa yfir að þau ætli að ... -
Sigurður Þorsteinsson Stöðvið heiminn, hér vil ég út! -
Óðinn Þórisson VG ekki valkostur
Innlent »
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 10. febrúar 2012, Innlent Furða sig á ummælum bæjarfulltrúa
- Fimmtudagur, 19. janúar 2012, Innlent Samfylking og VG halda hópinn
- Þriðjudagur, 24. janúar 2012, Innlent Pólitísk pattstaða í Kópavogi
- Mánudagur, 16. janúar 2012, Innlent „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“
- Mánudagur, 23. janúar 2012, Innlent Þreifingar halda áfram
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú



































