Engin áhætta fyrir VSP
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Viggó Þóri Þórissyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna (VSP), hófst fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Þinghald er með býsna sérstöku sniði þar sem flest vitni í málinu eru útlendingar og þarf að því að taka af þeim skýrslu í gegnum síma, með aðstoð túlks. Viggó gaf skýrslu í morgun og neitaði sök.
Ákæran á hendur Viggó Þóri er í tveimur liðum og er hann aðallega ákærður fyrir umboðssvik. Annars vegar fyrir að hafa útbúið tilhæfulaust skjal á ensku í nafni VSP með nafninu tryggingavörslusjóðir, undirritað af honum sjálfum, og látið viðgangast og ekki gert athugasemdir við að í útboðslýsingu skuldabréfaútboðs bandaríska fyrirtækisins Napis Inc., 18. október 2006, kæmi fram að skuldabréfaútboðið væri tryggt með 700 milljóna bandaríkjadala tryggingavörsluábyrgð á milli Napis og VSP, en skjalið tryggingavörslusjóðir var til grundvallar útboðslýsingunni.
Hvað þennan þátt varðar sagði Viggó að mistök hefðu ráðið því að skjalið sem sent var til kauphallarinnar í nefnt skipti hafi verið merkt VSP. Til hafi staðið að VSP tæki þátt í útboðinu en hætt hafi verið við það á „seinustu metrunum.“ Annað skjal hafi verið útbúið þar sem VSP hafi ekki verið nefnt en einhverra hluta vegna hafi rangt skjal verið sent inn. Viggó sagðist ekki kunna skýringar á því hvers vegna röng útgáfa var send inn. Hann benti einnig á að í útboðslýsingunni væri hvergi minnst á umrætt skjal.
Spurður út í það hvers vegna hætt var við að VSP tæki þátt í útboðinu sagðist Viggó ekki muna það, en bætti við að það væri ekki beint hlutverk VSP að taka þátt í útboðum af þessari gerð.
Viggó er einnig ákærður fyrir að hafa útbúið tvö tilhæfulaus skjöl á ensku í nafni VSP með nafninu innlánsskírteini sem tilhæfulaust staðfesta að Napis hafi á innlánsreikningi 200 milljónir bandaríkjadala sem megi greiða greiðsluþega eða löglegum framsalshöfum við framlagningu innlánsskírteinis eftir 31. desember 2009, og að þau séu framseljanleg án framlagningar eða greiðslu framsalsgjalds við framsalstilkynningu til VSP.
Í ákæru segir að með því að hafa útbúið umrædd skjöl og með notkun þeirra skuldbatt Viggó VSP þannig að VSP hefði við framlagningu löglegs handhafa innlánsskírteinis eftir 31. desember 2009 verið skylt að greiða 200 milljónir bandaríkjadala.
Viggó skýrði þetta sem svo að um viðskipti hefði verið að ræða sem ekki hefðu gengið í gegn. Frumrit hefðu aldrei farið frá VSP og því hefði aldrei skapast nein áhætta fyrir VSP. Um hefði verið að ræða nokkurs konar stuðningsskjöl sem hefðu aldrei átt að vera ábyrgðarskjöl.
Viggó tók fram að hefðu einhver viðskipti farið fram hefði hann sjálfur ekki hagnast persónulega. Hann hefði borið hag VSP fyrir brjósti og hagnað þess, en fyrirtækið hefði ekki greitt út bónusa og því hefði hann ekki sjálfur hagnast.
Aðalmeðferð heldur áfram eftir hádegið og verður þá tekin símaskýrsla af mönnum sem komu að ofangreindum viðskiptagjörningum.






































