Segir rangt að rannsóknarnefndin hafi svarað blaðamönnum
Björgólfur Thor Björgólfsson segir að forseti Alþingis hafi staðfest að rannsóknarnefnd Alþingis hafi látið af störfum í apríl 2010, um leið og hún skilaði skýrslu sinni til þingsins. Þá hafi nefndarmennirnir þrír staðfest að þeir hafi ekki svarað fyrirspurnum blaðamanna um efni skýrslunnar eða gefið skýringar á henni.
Það sé því rangt að rannsóknarnefndin hafi svarað blaðamönnum um þetta mál
Fram kemur í tilkynningu, sem aðstoðarmaður Björgólfs sendi á fjölmiðla, að þeirri spurningu sé ósvarað hvers vegna breska dagblaðið Observer og fréttamaðurinn Sigrún Davíðsdóttir hafi fullyrt að þau hefðu leitað til nefndarinnar eftir skýringum á skýrslu hennar – og fengið.
Þá segir að Björgólfur hafi skrifað bréf til forseta Alþingis og nefndarmanna í rannsóknarnefnd Alþingis 6. desember sl. og óskaði svara um störf rannsóknarnefndarinnar frá því í apríl 2010, þegar skýrsla hennar hafi verið opinberuð.
„Þá höfðu honum þrívegis borist upplýsingar sem bentu til þess að nefndin hefði veitt fyrirspyrjendum nánari skýringar á skýrslu sinni. Þannig fullyrti Sigrún Davíðsdóttir fréttamaður RÚV fyrir siðanefnd Blaðamannafélags Íslands að hún hefði grennslast eftir því hjá höfundum rannsóknarskýrslunnar hver væri réttur skilningur á tilteknu atriði í skýrslunni og fengið þær upplýsingar. Þá vísaði breska blaðið Observer tvívegis til þess í bréfum til Björgólfs Thors að rannsóknarnefndin hefði staðfest útreikninga blaðsins eins og þeir birtust í grein eftir breskan blaðamann og áðurnefnda Sigrúnu,“ segir í tilkynningunni.
„Í bréfi til Björgólfs Thors staðfestir forseti Alþingis að nefndin hafi látið af störfum í apríl 2010. Með bréfinu fylgja yfirlýsingar fyrrum nefndarmanna, þeirra Páls Hreinssonar, Tryggva Gunnarssonar og Sigríðar Benediktsdóttur. Í sameiginlegri yfirlýsingu Páls og Tryggva segir m.a. að þeir hafi ekki svarað fyrirspurnum þeirra aðila sem vísað sé til í bréfi Björgólfs Thors, þ.e. fyrirspurnum Observer og Sigrúnar Davíðsdóttur. Þeir segjast hafa svarað blaðamönnum og öðrum á þann veg, að þeir svöruðu ekki fyrirspurnum um efni skýrslunnar.
Í yfirlýsingu Sigríðar Benediktsdóttur segir einfaldlega að hún hafi hvorki fyrir hönd rannsóknarnefndarinnar né í nafni hennar svarað spurningum né gefið skýringar á efni rannsóknarskýrslunnar,“ segir ennfremur.





































