Sýknaður af innflutningi kókaíns
Hæstiréttur hefur sýknað mann sem dæmdur var í tveggja ára fangelsi í héraðsdómi fyrir innflutning á kókaíni. Hæstiréttur sýknaði manninn á þeirri forsendu að trúnaðarsamtal annars manns, sem einnig var ákærður í málinu, og lögfræðings hans var tekið upp og upptakan spiluð í héraðsdómi.
Meðferð málsins fór úr skorðum í héraði
Maðurinn var í Héraðsdómu Reykjavíkur dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að skipuleggja innflutning á tæplega tveimur kílóum af kókaíni. Annar maður var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir að flytja kókaínið til landsins frá Spáni. Sá undi dómi en hinn áfrýjaði til Hæstaréttar.
Hæstiréttur taldi að meðferð málsins í héraði hefði farið úr skorðum. Hefði m.a. verið brotið gegn ákvæðum laga um meðferð sakamála um trúnað sakbornings og verjanda og um bann við framlagningu gagna sem hafa að geyma upplýsingar um það þeim hefur farið á milli.
Við meðferð málsins í héraði var lagður fram mynddiskur með skýrslu mannsins, sem vægari dóm hlaut, hjá lögreglu 21. janúar 2010. Hafði hann þá verið í haldi lögreglunnar rúmlega 26 klukkustundir þegar yfirheyrsla yfir honum hófst, án þess að hann væri færður fyrir dómara.
Fram kemur á mynddiskinum að gert var hlé á skýrslutöku svo maðurinn gæti ráðfært sig einslega við verjanda sinn. Yfirgáfu lögreglumenn herbergið þar sem yfirheyrslan fór fram eftir að annar þeirra hafði tilkynnt að slökkt yrði á upptöku meðan á samtalinu stæði. Kemur fram í héraðsdómi að dómendur hafi hlýtt og horft á mynddiskinn með þessari skýrslu.
Hæstiréttur segir, að það að lögregla slökkti ekki á upptöku þannig að trúnaðarsamtal mannsins og verjanda hans var tekið upp á mynddisk hafi brotið í bága við ákvæði laga um meðferð sakamála þar sem verjanda er veitt heimild til að ráðfæra sig einslega við skjólstæðing sinn um hvað eina sem málið varðar.
Með því að ákæruvaldið lagði fram fyrrgreindan mynddisk við meðferð málsins í héraði og héraðsdómarar vísuðu athugasemdalaust til þess í dómi sínum að þeir hafi hlýtt og horft á hann hafi verið brotið gegn ákvæði laganna þar sem lagt er bann við framlagningu hvers konar gagna sem hafa að geyma upplýsingar um það sem sakborningi og verjanda hans hefur farið á milli. Er þetta vítavert, segir í niðurstöðu Hæstaréttar.
Var maðurinn sýknaður í Hæstarétti og allur sakarkostnaður skal greiddur af ríkissjóði.
Umræddur maður var árið 2010 dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa ásamt fleirum smyglað tæplega 1,8 kílóum af kókaíni frá Spáni.





































