Í mál við Kaupþing og Glitni

Ágreiningurinn snýst um gjaldmiðlasamninga. stækka

Ágreiningurinn snýst um gjaldmiðlasamninga. Reuters

Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fól í dag lögmönnum hagsmunagæslu vegna ágreinings við slitastjórnir Glitnis banka hf. annars vegar og Kaupþings banka hf. hins vegar vegna uppgjörs gjaldmiðlavarnarsamninga.

Þrátt fyrir að í rúm þrjú ár hafi verið leitað samkomulags um lausn þessa ágreinings hefur ekki tekist að ná niðurstöðu. Allra leiða verður leitað, með eða án atbeina dómstóla, til að tryggja best hagsmuni sjóðfélaga, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lífeyrissjóðnum.

Fyrir fall viðskiptabankanna gerði Lífeyrissjóður verzlunarmanna  gjaldmiðlavarnarsamninga við Kaupþing banka hf. og Glitni banka hf. Um var að ræða tvíhliða samninga sem ætlaðir voru  til að takmarka gjaldmiðlaáhættu sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn  hafði nýtt slíka samninga í nokkur ár fyrir fall bankanna í þeim tilgangi að jafna sveiflur í ávöxtun erlendra eigna sem voru rúmur þriðjungur af eignum sjóðsins á sama tíma og allar skuldbindingar hans eru verðtryggðar í íslenskum krónum.

Standast ekki lög

„Slitastjórnir hinna föllnu banka hafa hvor um sig krafið lífeyrissjóðinn um greiðslur sem þær ætla að sjóðurinn skuldi hinum föllnu bönkum vegna uppgjörs samninganna. Lífeyrissjóðurinn telur að þær kröfur standist ekki lög. Það byggir m.a. á því að allar forsendur fyrir gerð samninganna hafi brostið við þrot bankanna og algjör markaðsbrestur hafi orðið á innlendum gjaldmiðlamarkaði sem m.a. megi rekja til hegðunar hinna föllnu banka á gjaldeyrismarkaði.

Um var að ræða tvíhliða samninga þar sem vangeta bankanna varð algjör til að standa við sínar skuldbindingar eigi síðar en við fall fyrsta viðskiptabankans 7. október 2008. Þá hafa verið færð efnisleg rök fyrir því að ákveðnir stjórnendur hinna föllnu banka hafi hagað sér með þeim hætti að allar líkur séu til þess að þeir hafi skaðað hagsmuni lífeyrissjóðsins með ólögmætum hætti. Þannig hafi framganga þessara aðila á verðbréfamarkaði og gjaldeyrismarkaði orðið til þess að veikja krónuna með óforsvaranlegum hætti.

Ekki réttmætar kröfur

Margt af þessu hefur þegar komið fram í opinberum gögnum og umfjöllun. Þar má m.a. nefna stefnu slitastjórnar Glitnis banka hf. á hendur fyrrum stjórnendum bankans og umfjöllun í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þá er margt sem bendir til þess að reyna muni á þessi álitamál í boðuðum ákærum sérstaks saksóknara. Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur látið vinna greiningu á þróun gjaldeyrismarkaðar misserin fyrir hrun bankanna sem og lögfræðilega greiningu á þeim lagalegu atriðum sem þar koma til skoðunar. Niðurstaða þeirrar greiningar er eindregið sú að fjárkröfur slitastjórna Glitnis banka hf. og Kaupþings banka hf. séu ekki réttmætar og njóti ekki lagastoðar.

Málshöfðun undirbúin

Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ákvað því í dag að fela hæstaréttarlögmönnunum Helga Birgissyni og Ólafi Erni Svanssyni að gæta hagsmuna sjóðsins gagnvart slitastjórnum Glitnis banka hf. annars vegar og Kaupþings banka hf. hins vegar varðandi uppgjör gjaldmiðlavarnarsamninga. Þegar hefur verið hafinn undirbúningur að höfðun máls fyrir dómstólum til að afla nauðsynlegra gagna til lögfullrar sönnunar á þeim rökstudda grun stjórnar sjóðsins að forsvarsmenn hinna föllnu banka hafi hagað ráðum sínum með þeim hætti að það hafi valdið sjóðnum fjárhagstjóni. Sú háttsemi hafi jafnframt leitt til þess að slitastjórnum hinna föllnu banka sé ekki stætt að fara fram með fjárkröfur á hendur sjóðnum með þeim hætti sem gert hefur verið. Þá verði jafnframt metnir möguleikar þess að sækja bætur á hendur þeim aðilum sem kunna að hafa valdið lífeyrissjóðnum fjártjóni í þessu sambandi.

Fullreynt að ná sáttum

Sjóðfélögum til upplýsingar er rétt að geta þess að frá október 2008 hefur lífeyrissjóðurinn, ásamt öðrum lífeyrissjóðum, leitast við að ná samkomulagi við skilanefndir og svo slitastjórnir framangreindra banka um uppgjör gjaldmiðlavarnarsamninganna. Af hálfu lífeyrissjóðanna var m.a. lagt fram sáttarboð um uppgjör samninganna í árslok 2008. Því miður hafa  samningaumleitanir til þessa ekki borið árangur. Eins og að framan er rakið er nú svo komið að mati stjórnar sjóðsins að nær fullreynt er að ná niðurstöðu með almennum viðræðum. Því verður málum nú fylgt eftir með eða án atbeina dómstóla til að gæta ítrustu hagsmuna sjóðsins í þeim tilgangi að ljúka málinu og binda þar með enda á þá óvissu sem fylgir óuppgerðum samningum,“ segir í tilkynningu frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.

Skoði betur kaflann um forsetann

13:34 Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar ætlar að senda stjórnlagaráði, sem kemur saman 8. mars, nokkrar spurningar sem hún vill að ráðið ræði. Ein af þeim er varðandi stöðu forseta Íslands. Meira »
Frá Patreksfirði.

Draga hækkun til baka

13:26 Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt að draga til baka hækkun á leikskólagjöldum sem sett var á um áramótin og fella niður innritunargjald í félagsstarfi aldraðra. Meira »

Gagnrýnir skamman fyrirvara

Örn Bárður Jónsson, prestur og fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
13:18 „Ég gerði mér vonir um að Alþingi færi rækilega yfir þessar tillögur og skrifaði síðan um þær álit. Ég gerði hins vegar alveg eins ráð fyrir því að hópurinn yrði kallaður saman til skrafs og ráðagerða,“ segir Örn Bárður Jónsson, prestur og einn fulltrúa í stjórnlagaráði. Meira »

Segir rangt farið með málsatvik

Jón Baldvin Hannibalsson.
13:11 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra segir að ekki sé rétt farið með málsatvik í umfjöllun í Nýju lífi þegar því er haldið fram að hann hafi átt samskipti við vændiskonur er hann var í opinberum erindagjörðum í Tallin. Meira »

Afgreiðsla ekki í samræmi við lög

12:27 Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði ríkissaksóknara um að tilgreina beri ástæður þess að óskað sé eftir gögnum í máli sem er lokið, eigi sér ekki stoð í lögum. Er þeim tilmælum beint til embættisins að það endurskoði ákvæði þess efnis. Meira »

Klára málið í næstu viku

Valgerður Bjarnadóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
13:11 Ef Alþingi vísar máli gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, frá verða gögn sem safnað hefur verið saman vegna málshöfðunarinnar send á Þjóðskjalasafnið til varðveislu. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd reiknar með að afgreiða tillögu um afturköllun málsmeðferðar í næstu viku. Meira »

Börn og unglingar í óhamingjugildru

12:32 Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau,“ segir dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, Rannsóknarstofnunnar í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Meira »

Baðst afsökunar fyrir 12 árum

Jón Baldvin Hannibalsson.
12:17 „Ég hef ekki séð blaðið og veit ekki hvað stendur í því,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, um umfjöllun í Nýju lífi þar sem systurdóttir eiginkonu hans segir frá bréfum sem hann sendi henni er hún var á unglingsaldri. Meira »

Hundarnir finna dópið strax myndskeið

230212 logguhundar
12:00 Undanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar. Meira »

Gerir alvarlegar athugasemdir

Salvör Nordal, fyrrum formaður Stjórnlagaráðs, ásamt fleiri fulltrúum í ráðinu.
11:52 Fram koma alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá í bréfi fyrrverandi formanns ráðsins, Salvarar Nordal, til forsætisnefndar þingsins í kjölfar þess að samþykkt var á Alþingi í gær að vísa málinu til ráðsins á ný. Meira »

Ummerki um olíu frá Júratímabilinu

Drekasvæðið.
11:54 Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkustofnunar. Meira »

D-vítamínbætt mjólk á markað

D-vítamínbætt léttmjólk.
11:44 Mjólkursamsalan, MS, hefur á næstu dögum sölu á D-vítamínbættri léttmjólk. Er það gert samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala. Meira »

Telja neytendur eiga betri rétt

11:36 Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm um gengistryggð lán. Leggja samtökin til að Samtök fjármálafyrirtækja verði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang. Meira »

Tæplega helmingur ók of hratt

Hraðamælingar lögreglu.
11:31 Tæplega helmingur ökumanna sem fór um Suðurgötu í Reykjavík á einni klukkustund eftir hádegið í gær ók of hratt eða yfir afskiptahraða. Á meðan lögregla vaktaði götuna fóru 122 ökutæki akstursleiðina og 48% þeirra voru á of mikilli ferð. Meira »

Vatnsleki vegna ræktunar

Kannabisræktun.
11:05 Lögregla höfuðborgarsvæðisins stöðvaði kannabisræktun í íbúð fjölbýlishúss í miðborg Reykjavíkur í fyrradag. Tilkynnt var um mikinn vatnsleka í húsinu og var slökkviliðið kallað á vettvang, en lekann mátti rekja til ræktunarinnar. Karlmaður á þrítugsaldri var yfirheyrður vegna málsins. Meira »

Unnur Brá: Eina lausnin?

Unnur Brá Konráðsdóttir
11:33 „Svo virðist sem forsætisráðherra hafi aðeins eitt svar við öllum spurningum og eina lausn á öllum vanda, það er að Ísland gangi í ESB og taki upp evru", segir Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum

Jón Baldvin Hannibalsson
11:14 Eitt bréfanna sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi ungri systurdóttur eiginkonu sinnar var sent frá Tallinn í Eistlandi árið 2001. Þá var hann þar staddur í opinberum erindagjörðum sem heiðursræðumaður á hátíðarsamkomu, sem var skipulögð af upplýsingaskrifstofu Norræna ráðherraráðsins þar í landi. Hann lýsir þar samskiptum sínum við vændiskonur. Meira »

„Ég er komin með nóg“

Úr Nýju lífi
11:03 „Ég er komin með nóg. Reglulega kemur upp hjá mér reiði, sorg eða biturð yfir þessu máli og nú langar mig að koma því frá mér,“ segir Guðrún Harðardóttir, sem í viðtali í Nýju lífi segir frá bréfum sem eiginmaður móðursystur hennar, Jón Baldvin Hannibalsson, sendi henni er hún var unglingur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
VIÐGERÐIR
Saumavélar - saumavélaviðgerðir: Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali. Viðgerðir...
SUMARHÚS GESTAHÚS
Sumarhús - Gestahús - Breytingar O  Framleiðum stórgl...
Gisting Ísafirði
Gisting Áslaugar - Faktorshúsið í Hæstakaupstað, Ísafirði: Svíta/herbergi með s...
iPod Touch 64GB 4G til sölu (s:863-6379)
Nýjasta kynslóð iPod Touch með 64 gígabita diski fæst til sölu á 60 þúsund. Mjög...
 
Starfsmaður óskast í ökutækjaviðgerðir
Iðnaðarmenn
Starfsmaður óskast Stormur ehf. sérh...
Fullbúið skrifstofu-, æfinga- og sýningarhúsnæði óskast

15190 - Fullbúið skrifstofu-, æfinga- o...
I.o.o.f.7.
Félagsstarf
I.O.O.F.7.[192220271/2[0.*...
Opinn fundur
Fundir - mannfagnaðir
Opinn fundur um umferðar- og skip...