Snjóflóðahætta á Ísafirði og Hnífsdal

Gífurlegt fannfergi er á Vestfjörðum.

Gífurlegt fannfergi er á Vestfjörðum. mbl.is

Lögreglustjórinn á Ísafirði hefur í samráði við Veðurstofu Íslands ákveðið að láta rýma svæði undir Seljalandshlíð á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Einnig bæina  Hraun í Hnífsdal og Höfða við Kirkjubólshlíð.

Áður hafði Veðurstofa Íslands, í samráði við lögreglustjórann á Vestfjörðum, lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mun fólkið verða flutt til ættingja sinna.

Þá féll snjóflóð fyrir stundu úr Kirkjubólshlíð en talið er að um sé að ræða krapaflóð þar sem hitastig hefur hækkað og talsverð rigning er á svæðinu.

Á Vestfjörðum er núna suðaustan 13-18 m/s, en spáð er að það lægi talsvert í kvöld. Það hvessir hins vegar aftur síðdegis á morgun. Það er slydda eða rigning og talsvert heitt í veðri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Patreksfirði.

Draga hækkun til baka

13:26 Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt að draga til baka hækkun á leikskólagjöldum sem sett var á um áramótin og fella niður innritunargjald í félagsstarfi aldraðra. Meira »
Valgerður Bjarnadóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

Klára málið í næstu viku

13:11 Ef Alþingi vísar máli gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, frá verða gögn sem safnað hefur verið saman vegna málshöfðunarinnar send á Þjóðskjalasafnið til varðveislu. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd reiknar með að afgreiða tillögu um afturköllun málsmeðferðar í næstu viku. Meira »

Gagnrýnir skamman fyrirvara

Örn Bárður Jónsson, prestur og fyrrverandi fulltrúi í stjórnlagaráði.
13:18 „Ég gerði mér vonir um að Alþingi færi rækilega yfir þessar tillögur og skrifaði síðan um þær álit. Ég gerði hins vegar alveg eins ráð fyrir því að hópurinn yrði kallaður saman til skrafs og ráðagerða,“ segir Örn Bárður Jónsson, prestur og einn fulltrúa í stjórnlagaráði. Meira »

Börn og unglingar í óhamingjugildru

12:32 Það er ekki nóg að tækifærin séu til, einstaklingurinn þarf að hafa hvata til þess að sjá þá möguleika sem hann hefur á að nýta sér þau,“ segir dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf og formaður stjórnar RBF, Rannsóknarstofnunnar í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Meira »

Baðst afsökunar fyrir 12 árum

Jón Baldvin Hannibalsson.
12:17 „Ég hef ekki séð blaðið og veit ekki hvað stendur í því,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, um umfjöllun í Nýju lífi þar sem systurdóttir eiginkonu hans segir frá bréfum sem hann sendi henni er hún var á unglingsaldri. Meira »

Segir rangt farið með málsatvik

Jón Baldvin Hannibalsson.
13:11 Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra segir að ekki sé rétt farið með málsatvik í umfjöllun í Nýju lífi þegar því er haldið fram að hann hafi átt samskipti við vændiskonur er hann var í opinberum erindagjörðum í Tallin. Meira »

Afgreiðsla ekki í samræmi við lög

12:27 Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði ríkissaksóknara um að tilgreina beri ástæður þess að óskað sé eftir gögnum í máli sem er lokið, eigi sér ekki stoð í lögum. Er þeim tilmælum beint til embættisins að það endurskoði ákvæði þess efnis. Meira »

Hundarnir finna dópið strax myndskeið

230212 logguhundar
12:00 Undanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar. Meira »

Ummerki um olíu frá Júratímabilinu

Drekasvæðið.
11:54 Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkustofnunar. Meira »

D-vítamínbætt mjólk á markað

D-vítamínbætt léttmjólk.
11:44 Mjólkursamsalan, MS, hefur á næstu dögum sölu á D-vítamínbættri léttmjólk. Er það gert samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala. Meira »

Gerir alvarlegar athugasemdir

Salvör Nordal, fyrrum formaður Stjórnlagaráðs, ásamt fleiri fulltrúum í ráðinu.
11:52 Fram koma alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá í bréfi fyrrverandi formanns ráðsins, Salvarar Nordal, til forsætisnefndar þingsins í kjölfar þess að samþykkt var á Alþingi í gær að vísa málinu til ráðsins á ný. Meira »

Telja neytendur eiga betri rétt

11:36 Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm um gengistryggð lán. Leggja samtökin til að Samtök fjármálafyrirtækja verði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang. Meira »

Unnur Brá: Eina lausnin?

Unnur Brá Konráðsdóttir
11:33 „Svo virðist sem forsætisráðherra hafi aðeins eitt svar við öllum spurningum og eina lausn á öllum vanda, það er að Ísland gangi í ESB og taki upp evru", segir Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum

Jón Baldvin Hannibalsson
11:14 Eitt bréfanna sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi ungri systurdóttur eiginkonu sinnar var sent frá Tallinn í Eistlandi árið 2001. Þá var hann þar staddur í opinberum erindagjörðum sem heiðursræðumaður á hátíðarsamkomu, sem var skipulögð af upplýsingaskrifstofu Norræna ráðherraráðsins þar í landi. Hann lýsir þar samskiptum sínum við vændiskonur. Meira »

„Ég er komin með nóg“

Úr Nýju lífi
11:03 „Ég er komin með nóg. Reglulega kemur upp hjá mér reiði, sorg eða biturð yfir þessu máli og nú langar mig að koma því frá mér,“ segir Guðrún Harðardóttir, sem í viðtali í Nýju lífi segir frá bréfum sem eiginmaður móðursystur hennar, Jón Baldvin Hannibalsson, sendi henni er hún var unglingur. Meira »

Tæplega helmingur ók of hratt

Hraðamælingar lögreglu.
11:31 Tæplega helmingur ökumanna sem fór um Suðurgötu í Reykjavík á einni klukkustund eftir hádegið í gær ók of hratt eða yfir afskiptahraða. Á meðan lögregla vaktaði götuna fóru 122 ökutæki akstursleiðina og 48% þeirra voru á of mikilli ferð. Meira »

Vatnsleki vegna ræktunar

Kannabisræktun.
11:05 Lögregla höfuðborgarsvæðisins stöðvaði kannabisræktun í íbúð fjölbýlishúss í miðborg Reykjavíkur í fyrradag. Tilkynnt var um mikinn vatnsleka í húsinu og var slökkviliðið kallað á vettvang, en lekann mátti rekja til ræktunarinnar. Karlmaður á þrítugsaldri var yfirheyrður vegna málsins. Meira »

Allt að 25% verðmunur

11:03 Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í þremur lágverðverslunum og fjórum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu og Ísafirði 20. febrúar. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Samkaupum-Úrvali eða í um helmingi tilvika. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Nokkrar teg af vöskum til sölu.
Ýmsar stærðir og gerðir eins og sést á mynd. Hitaveituofnin er 188cm*60cm 2 fald...
Námsaðst. ritgerðir, verkefni, þýðingar
Námsmannaráðgjöf aðstoðar við ritgerðir, verkefni, einnig prófarkalestur og þýði...
Vantar þig iðnaðarmann?
Vantar þér sólpall, skipta um gler eða glugga, lekur húsið? nýsmíði og viðhald h...
Raflagnir, dyrasímar - s. 6630746
Bjóðum hagstætt verð í töfluskipti. Úttekt á raflögnum í eldra húsnæði, án endu...
 
Starfsfólk óskast
Ræstingar
Starfsfólk óskast Hreint ehf. óskar efti...
I.o.o.f.7.
Félagsstarf
I.O.O.F.7.[192220271/2[0.*...
Tölvunarfræðingur - forritari
Tölvur/upplýsingatækni
Tölvunarfræðingur - forritari Námsgag...
Sýslumaðurinn á akureyri - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....