Svikamylla án hliðstæðu hér á landi
Saksóknari krafðist þess við Héraðsdóm Reykjaness í morgun að Viggó Þórir Þórisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna (VSP), verði dæmdur í fjögurra ára fangelsi og að refsingin verði ekki bundin skilorði. Hann sagði um að ræða alþjóðlega svikamyllu án hliðstæðu hér á landi sem hafi orðið til þess að starfsemi VSP var sjálfhætt.
Aðalmeðferð í málinu lauk eftir hádegið í dag og málið hefur því verið dómtekið. Þar með er stórum áfanga náð en málið upp kom 11. apríl 2007, eftir að forsvarsmenn VSP létu lögreglu vita um hugsanlega refsiverða háttsemi framkvæmdastjóra félagsins. Þess má geta að Viggó var gert að sæta farbanni eftir að málið kom upp og var því ekki aflétt fyrr en Hæstiréttur felldi farbannið úr gildi 23 mánuðum síðar. Er um að ræða lengsta farbann sem nokkur maður hefur sætt hér á landi.
Við málflutning í morgun sagði Björn Þorvaldsson saksóknari að málið væri afar umfangsmikið og teygði anga sína til margra landa. Þó svo að það hafi tekið langan tíma í rannsókn ætti það ekki að hafa mikið vægi við ákvörðun refsingar, auk þess sem hann sagði Viggó ekki hafa aðstoðað mikið við að upplýsa um málið. Hann sagði gríðarlega hagsmuni í málinu og benti á að starfsemi VSP hafði verið hætt vegna málsins. Brot hans hafi verið einbeitt, náðu yfir langan tíma og um hafi verið að ræða fordæmalausa misnotkun aðstöðu.
Hefði auðgast um milljónir dollara
Skjölin sem Viggó útbjó, og ákært er fyrir, tengdust öll bandaríska fyrirtækinu Napis. Meirihlutaeigandi þess var David Spargo en Viggó og Spargo hafa verið vinir síðan þeir voru saman í háskóla í Arizona í Bandaríkjunum. Björn benti á að við rannsókn lögreglu á málinu hafi komið í ĺjós að Viggó átti 25% hlut í Napis. Hefði svikamylla hans gengið upp hefðu gríðarlegir fjármunir farið inn á reikning Napis og Viggó auðgast um milljónir dollara.
Viggó neitaði fyrir eignarhlutinn og sagði að um ranga skráningu væri að ræða, hugsanlega væri þó um veðhluti að ræða, þ.e. að hann hafi tekið þá að veði vegna lána til Spargo. Björn sagði að þó svo ekki tækist að sanna að Viggó hafi átt í Napis væri hann samt vanhæfur vegna náinna tengsla sinna við eiganda Napis. Þá hafi hann lánað Spargo, en ekki Napis, andvirði á milli fimmtán og sautján milljóna króna, m.a. Í eitt skipti til þess að hann gæti greitt starfsfólki sínu laun. Síðar þáði Viggó greiðslur frá Napis upp á 17 milljónir.
Björn sagði Viggó hafa reynt að hafa fé af grunlausum einstaklingum í útlöndum með því að spinna flókin vef og nýta sér gott orðspor VSP. Hann hafi útbúið tilhæfulaus skjöl sem nýta átti bæði til að gera hlutabréf í Napis seljanlegri en þegar þau seldust ekki voru önnur skjöl útbúin sem nota mátti slá stórt lán. Með skjölunum var VSP skuldbundið til að greiða nærri hundrað milljarða króna.
Viðurkenndi tengsl eftir tvö ár
Að neðan má sjá nánari útlistingu á því fyrir hvað Viggó er ákærður. Hvað varðar skuldabréfaútboð Napis sagði Björn, að komið hefði í ljós að Viggó greiddi skráningargjald fyrir útboðið, 1.1 milljón króna. Í útboðslýsingunni hafi einnig komið fram að Viggó eigi 25% í félaginu og sé stjórnarmaður í því. Björn sagði Viggó hafa neitað öllum tengslum við félagið Napis lengi vel við rannsókn málsins. Tveimur árum eftir fyrstu yfirheyrslu viðurkenndi hann að hafa áttað sig á, að hann væri skráður fyrir 25% hlut í félaginu á einhverjum tímapunkti. Björn sagði þetta hafa verið eftir að gögn bárust að utan, sem hægt var bera undir Viggó.
Fyrir útboðið útbjó Viggó skjal á ensku í nafni VSP með nafninu tryggingavörslusjóðir sem notað var. Viggó sagði sjálfur að rangt skjal hefði verið sent inn til kauphallarinnar en Björn sagði það haldlaust og vísaði í tölvupósta þar sem skjalið var til umfjöllunar máli sínu til stuðnings.
Þá sagði Björn að það væri ekki Viggó að þakka að svikamyllan hefði ekki gengið upp. Hann hefði reynt af fullum mætti að selja skuldabréf í Napis og hafi sent hugsanlegum kaupendum fölsuð skjöl og reikningsyfirlit í nafni VSP til að fegra stöðu Napis.
Þá er Viggó ákærður fyrir að útbúa tilhæfulaus innlánskírteini sem nota átti til að fá lán fyrir Napis. Innlánsskírteinin voru að forskrift viðskiptafélaga Spargos og átti að virka sem veð fyrir 200 milljónum bandaríkjadala. Þegar ekki gekk að fá lán hjá Skotlandsbana (e. Bank of Scotland) var leitað til fleiri banka til að falast eftir láni út á innlánsskírteinin. Ekkert heppnaðist en Björn sagði það ekki Viggó að þakka sem hafi eftir fremsta megni reynt að tryggja framgang þessa, s.s. með því að senda tölvubréf, gögn, til dæmis með hraðflutningsþjónustu.
Björn sagði að Viggó hefði ekki getað dulist í hvað átti að nota innlánsskírteinin og að þau hafi verið skuldbindandi. Því liggi fyrir skýr ásetningur og til auðgunar.
Veruleg hætta fyrir VSP
Ákæran á hendur Viggó Þóri er í tveimur liðum og er hann aðallega ákærður fyrir umboðssvik. Annars vegar fyrir að hafa útbúið tilhæfulaust skjal á ensku í nafni VSP með nafninu tryggingavörslusjóðir, undirritað af honum sjálfum, og látið viðgangast og ekki gert athugasemdir við að í útboðslýsingu skuldabréfaútboðs bandaríska fyrirtækisins Napis Inc., 18. október 2006, kæmi fram að skuldabréfaútboðið væri tryggt með 700 milljóna bandaríkjadala tryggingavörsluábyrgð á milli Napis og VSP, en skjalið tryggingavörslusjóðir var til grundvallar útboðslýsingunni.Með þessu mun Viggó hafa skuldbundið VSP til að ábyrgjast skuldabréfaútboðið, þannig að veruleg hætta var á að kaupendur skuldabréfa Napis krefðust greiðslna hjá VSP greiddi Napis ekki af seldum skuldabréfum.Til vara er Viggó ákærður fyrir tilraun til fjársvika með því að hafa reynt að blekkja kaupendur skuldabréfa með umræddu skjali og einnig útgáfu þriggja tilhæfulausra reikningsyfirlitaSkylt að greiða 200 milljónirJafnframt er Viggó ákærður fyrir að hafa útbúið tvö tilhæfulaus skjöl á ensku í nafni VSP með nafninu innlánsskírteini sem tilhæfulaust staðfesta að Napis hafi á innlánsreikningi 200 milljónir bandaríkjadala sem megi greiða greiðsluþega eða löglegum framsalshöfum við framlagningu innlánsskírteinis eftir 31. desember 2009, og að þau séu framseljanleg án framlagningar eða greiðslu framsalsgjalds við framsalstilkynningu til VSP.Í ákæru segir að með því að hafa útbúið umrædd skjöl og með notkun þeirra skuldbatt Viggó VSP þannig að VSP hefði við framlagningu löglegs handhafa innlánsskírteinis eftir 31. desember 2009 verið skylt að greiða 200 milljónir bandaríkjadala.Þá er hann til vara ákærður fyrir tilraun til fjársvika með því að hafa reynt að blekkja Bank of Scotland og China Trust Commercial Bank til að kaupa innlánsskírteinin.







































