Verðbólgan magnast

Rekstur ökutækja hefur hækkað um 11,47% á einu ári. stækka

Rekstur ökutækja hefur hækkað um 11,47% á einu ári. mbl.is/Ómar

Ársverðbólga mælist 6,5% og vísitala neysluverðs hefur hækkað um 0,28% það sem af er þessu ári. Forseti ASÍ segir ástæðuna vera gjaldskrárhækkanir sveitarfélaganna og kallar þær dulbúnar skattahækkanir. Hann kallar eftir umræðu um krónuna.

Í fréttaskýringu um verðlagsmálin í Morgunblaðinu í dag segir hagfræðingur ASÍ  verðtryggðar skuldir heimilanna hafa hækkað um 3,5 milljarða frá áramótum. Þetta kemur fram í nýjustu mælingum á vísitölu neysluverðs, sem Hagstofa Íslands birti í gær og eru miðaðar við verðlag í janúar.

Greiningardeildir bankanna höfðu spáð nokkuð minni verðbólgu, eða 6,2-6,3%. Meðal þess sem hefur hækkað er opinber þjónusta, sem hækkaði að meðaltali um 5,8%. Þar af hækkuðu gjöld fyrir sorphirðu, vatn og holræsi um 12,6%. Verð dagvöru hefur hækkað um 0,8% og bensín og díselolía um 5,2%.

„Það er alveg klárt að þessar ákvarðanir sveitarfélaganna eru ekki vegna kostnaðarbreytinga á þeirri þjónustu sem þau veita, heldur er verið að skattleggja og gera þjónustuliðina dýrari en ella,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Jón Baldvin Hannibalsson

Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum

11:14 Eitt bréfanna, sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi ungri systurdóttur eiginkonu sinnar, var sent frá Tallin í Eistlandi árið 2001. Þá var hann þar staddur í opinberum erindagjörðum sem heiðursræðumaður á hátíðarsamkomu, sem var skipulögð af upplýsingaskrifstofu Norræna ráðherraráðsins þar í landi. Hann lýsir þar samskiptum sínum við vændiskonur. Meira »
Kannabisræktun.

Vatnsleki vegna ræktunar

11:05 Lögregla höfuðborgarsvæðisins stöðvaði kannabisræktun í íbúð fjölbýlishúss í miðborg Reykjavíkur í fyrradag. Tilkynnt var um mikinn vatnsleka í húsinu og var slökkviliðið kallað á vettvang, en lekann mátti rekja til ræktunarinnar. Karlmaður á þrítugsaldri var yfirheyrður vegna málsins. Meira »

„Ég er komin með nóg“

Úr Nýju lífi
11:03 „Ég er komin með nóg. Reglulega kemur upp hjá mér reiði, sorg eða biturð yfir þessu máli og nú langar mig að koma því frá mér,“ segir Guðrún Harðardóttir, sem í viðtali í Nýju lífi segir frá bréfum sem eiginmaður móðursystur hennar, Jón Baldvin Hannibalsson, sendi henni er hún var unglingur. Meira »

„Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“

Þór Saari.
10:58 Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar skrifar á Facebook að Pawel Bartozsek sem sat í stjórnlagaráði og hefur gagnrýnt meðferð þingsins á tillögum þess, virðist eitthvað misskilja ferlið við breytingar á stjórnarskránni. Þór skorar á Pawel að halda áfram að vinna með stjórnlagaráði. Meira »

Með kannabisgræðlinga í bíl

Kannabisplöntur.
10:46 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði í húsi manns eftir að á fjórða tug kannabisgræðlinga fundust í bíl hans í fyrradag. Við húsleitina fundust um 900 grömm af tilbúnu maríjúana og um 1,4 kg af öðrum kannabisefnum. Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin. Meira »

Allt að 25% verðmunur

11:03 Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 3 lágvöruverðverslunum og 4 stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu og Ísafirði 20. febrúar. Verslanirnar Kostur og Víðir neituðu að taka þátt í könnuninni. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Samkaupum-Úrvali eða í um helmingi tilvika.  Meira »

Perlan góður kostur fyrir safn

Perlan
10:51 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningamálaráðherra, sagði á Alþingi í dag, að hún hefði rætt það óformlega við stjórnarmenn Orkuveitu Reykjavíkur að Perlan yrði nýtt undir Náttúruminjasafn Íslands, verði ekki af sölu hennar. Hún segir Perluna áhugaverðan kost fyrir safn af því tagi. Meira »

Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
10:44 Fram kom í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í dag að gert væri ráð fyrir því að rammaáætlun um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða yrði tilbúin á næstu dögum. Meira »

Efla þarf rannsóknir á höfunum

Ólafur Ragnar Grímsson.
10:34 Nauðsynlegt er að efla rannsóknir á höfunum og auðlindum þeirra, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands í setningarræðu á heimsþingi um höfin í morgun sem haldið er í Singapúr. Hann rakti einnig reynslu Íslendinga af veiðum á grundvelli vísindalegra vísinda og þróun samstarfs á Norðurslóðum. Meira »

Málið var kært, en fellt niður

Forsíða Nýs lífs.
10:09 Samkvæmt umfjöllun nýjasta tölublaðs Nýs lífs reyndi Jón Baldvin Hannibalsson að kyssa systurdóttur eiginkonu sinnar þegar hún var á unglingsaldri, hann fór inn í herbergi hennar að næturlagi og snerti hana „óþarflega mikið“. Hann sendi henni bréf, þar sem hann lýsti kynlífi sínu og samskiptum við vændiskonur. Málið var kært, en látið falla niður. Meira »

Bað hana um að leyna bréfunum

Jón Baldvin Hannibalsson
10:31 Jón Baldvin bað systurdóttur eiginkonu sinnar um að leyna bréfum sem hann sendi henni næstu áratugina. Ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri um samfellda háttsemi að ræða og því væru hin meintu eða ætluðu brot vegna bréfanna frá 1998, fyrnd. Meira »

Óvíst um fordæmisgildi

KPMG
09:54 Hugsanlegt er að fordæmisgildi nýfallins gengislánadóms sé ekki það mikið. Þetta kom fram í máli Sigurjóns Högnasonar, lögfræðings, á morgunverðarfundi KPMG í morgun, þar sem farið var yfir dóminn með hliðsjón af fordæmisgildi hans. Er þá litið til þess að þar sé efni dómsins um það afmarkað efni. Meira »

Farþegum með Norrænu fækkaði

Norræna.
09:51 Nákvæmlega jafn margir komu með Norrænu til Seyðisfjarðar á síðasta ári og fóru með henni, 14.029, samkvæmt upplýsingum úr svari innanríkisráðherra við fyrispurn þingmanns Framsóknarflokks. Farþegum fækkaði töluvert frá árinu 2010. Meira »

Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?

Ólafur Ingi Tómasson
09:39 „Nú hátt í sex árum eftir að varnarliðið fór af landi brott er Isavia ohf. með góðri aðstoð yfirvalda að takast að útrýma fagstétt sem á sér talsvert langa sögu og nefnist flugvallarslökkvilið", segir Ólafur Ingi Tómasson í grein í Mbl. í dag. Meira »

Innkalla rjómasprautu

Rjómasprautan er af gerðinni Excellent Houseware.
09:30 Aðföng hafa innkallað Excellent Houseware 1 lítra rjómasprautu þar sem í ljós hefur komið að hún getur verið hættuleg neytendum, segir í tilkynningu. Meira »

Undir áhrifum á ótryggðum bíl

09:42 Laust eftir miðnætti stöðvaði lögreglan bifreið á Bústaðavegi. Ökumaður var grunaður um fíkniefnaakstur, bifreiðin var ótryggð og ökumaður án ökuskírteinis. Skráningarnúmer bílsins voru fjarlægð og ökumaður færður á næstu lögreglustöð. Meira »

Ný stjórn Röskvu

Iðunn Garðarsdóttir, formaður Röskvu.
09:35 Ný stjórn Röskvu var kjörin á aðalfundi Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, í gær. Iðunn Garðarsdóttir, íslenskunemi var kjörin formaður og Erla Karlsdóttir. sálfræðinemi er varaformaður stjórnar. Meira »

Geir Jón gefur kost á sér

Geir Jón Þórisson.
08:28 Eftir vandlega umhugsun og mikla hvatningu hefur Geir Jón Þórisson lögreglumaður ákveðið að gefa kost á sér sem annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann segir það einlæga von sína og trú að hann sé rétti maðurinn til að vinna með fólkinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
50 mm dráttarkúla f. prófíl
Til sölu kúluhaldari fyrir 50x50 prófíl. 50 mm ryðfrí kúla og splitti fylgir.Hen...
KAUPUM GULL
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfurborðb...
MMC L200 DOUBLE CAB
Mmc L200 Double Cab GLS 4wd Nýskr. 5/2005, ekinn 116 þ. km, d...
Til sölu Fleetwood Ceyenne 10 fet árg. 2006 EITT MEÐ ÖLLU
Fortjald og markísa ,sólarsella, útvarp og cd með tengi fyrir ipod, svefntjöld b...
 
Starfsmaður óskast í ökutækjaviðgerðir
Iðnaðarmenn
Starfsmaður óskast Stormur ehf. sérh...
Atvinnuhúsnæði ártúnshöfða til leigu

Atvinnuhúsnæði - Ártúnshöfði Til leigu...
Sýslumaðurinn í vestmannaeyjum - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Hlutabréf til sölu í útflutningsfyrirtæki

Hlutabréf til sölu í útflutningsfyrirtæk...