Boðar nýtt frumvarp um RÚV
Katrín Jakobsdóttir, sagði á Alþingi í dag að nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið ohf. verði væntanlega kynnt í næstu viku. Sagði Katrín á Alþingi í dag að markmið frumvarpsins væri m.a. að efla sjálfstæði Ríkisútvarpsins.
Þetta kom fram í fyrirspurnartíma en Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarfokks, sagðist hafa setið aðalfund Ríkisútvarpsins ohf. í morgun þar sem Katrín boðaði þetta frumvarp. Þá hefði einnig komið fram að sú stofnun stæði mjög traustum fótum þrátt fyrir mikinn niðurskurð í rekstrinum.
Siv vísaði í frétt DV um að Vinstri grænir vildu meira eftirlit með RÚV og kvartað væri undan því að menntamálaráðherra gæti ekki beitt eigendavaldi til að hafa áhrif á stofnunina. „Er ekki kominn tími til að þessi stofnun fái nú frið til að sinna því góða starfi sem hún hefur sinnt upp á síðkastið," sagði Siv og sagðist ekki vilja endurreisn gamla útvarpsráðsins, sem var með puttana í fréttum Ríkisútvarpsins.
Katrín sagðist hafa séð frétt DV og ekki áttað sig á innihaldi hennar og hvernig aukið eftirlit með RÚV ætti að fara fram „en myndin af mér sem fylgdi með var mjög ógnvekjandi," sagði hún.
Katrín sagði að nýja frumvarpið snérist um að efla starfsemi Ríkisútvarpsins og tryggja fjárhagslegt sjálfstæði þess, m.a. með því að marka því á ný ákveðinn tekjustofn í stað þess að að stofnunin fái framlag á fjárlögum.
„Það er hins vegar rétt, að ætlunin er að skýra í frumvarpinu hlutverk og verksvip stjórnar," sagði Katrín. Hún sagði að ekki væri lagt til að gerðar yrðu grundvallarbreytingar á formi félagsins en skýra ýmsa hluti betur. Uppi væru hugmyndir um að Alþingi skipi ekki beint í stjórn RÚV heldur skipi sérstaka valnefnd sem skipar síðan stjórnina. Slíkt fyrirkomulag væri m.a. í Noregi.
Siv sagði að ráðherra hefði sagt að breyta eigi hlutverki stjórnar RÚV „og þar stendur hnífurinn í kúnni. Nú eru í stjórn RÚV fulltrúar frá flokkunum og þeir eru að standa sig held ég ágætlega en ég held að almenningur vilji ekki breyta hlutverki stjórnar RÚV þannig að það verði meiri pólitísk afskipti af stofnuninni," sagði Siv.
Katrín sagði að ekki væri ætlunin að dagskrárvald færist til stjórnar RÚV heldur verði það áfram á hendi útvarpsstjóra.
Innlent »
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. febrúar 2012, Innlent Takmarkanir verði á auglýsingum
- Fimmtudagur, 23. febrúar 2012, Innlent Perlan góður kostur fyrir safn
- Föstudagur, 10. febrúar 2012, Innlent Tillögur skila RÚV auknum tekjum
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent Bandalag listamanna ósátt með nýkjörna stjórn RÚV
- Þriðjudagur, 25. október 2011, Innlent RÚV gefi skýrslu um ferðir starfsmanna
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































