Barnið hjálmlaust á fjórhjóli

Fjórhjól - mynd úr safni
Fjórhjól - mynd úr safni

Lögreglumenn á Akranesi stöðvuðu ökumann númerslauss fjórhjóls í umferðinni.  Ökumaður þess var með barn með sér á hjólinu og barnið hjálmlaust. 

Barninu var komið til foreldra sem voru skammt frá en ökumaðurinn má gera ráð fyrir sekt fyrir athæfið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert