Leita að vitnum að sprengingu

Séð yfir vettvang við Hverfisgötu.
Séð yfir vettvang við Hverfisgötu. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn hennar á sprengju sem fannst neðst við Hverfisgötu í Reykjavík í morgun. Lögreglan biður einstakling, sem var á biðstöð fyrir strætisvagna neðst á Hverfisgötunni fyrir klukkan sjö, sérstaklega um að gefa sig fram

Lögreglan segir að staðfest sé að sprengjan sprakk fyrir klukkan sjö í morgun, skammt frá Stjórnarráðinu í Lækjargötu. Engan sakaði og engar skemmdir urðu. Sprengjan hafi ekki verið öflug en hætta hafi  þó verið á ferðum í nánasta umhverfi þar sem hún sprakk.

Einnig sé ljóst að sá eða þeir sem bjuggu hana til hafi þurft að búa yfir einhverri kunnáttu. Lögreglan segist líta málið mjög alvarlegum augum og sé rannsókn þess í fullum gangi.

Enn er enginn grunaður um verknaðinn en meðal þess sem lögreglan vinnur að er að yfirfara myndefni úr eftirlitsmyndavélum í miðborginni. Sprengjan er til frekari rannsóknar hjá tæknideild lögreglunnar.

Loka þurfti hluta Hverfisgötunnar, eða frá Lækjargötu að Ingólfsstræti.  Sprengjusveitir lögreglu og Landhelgisgæslunnar voru kallaðar til og var sprengjueyðingarvélmenni notað til að skjóta sprengihleðslu á leifarnar af sprengjunni. Hverfisgata var opnuð að nýju hádegisbil.

Lögreglan biður einstakling, sem var á biðstöð fyrir strætisvagna neðst á Hverfisgötunni fyrir klukkan sjö, sérstaklega um að gefa sig fram. Aðrir, hvort sem þeir geta gefið upplýsingar um fólk eða ökutæki á þessu svæði á tímabilinu frá klukkan 6.30 til 7, eru einnig beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 en upplýsingar má einnig senda í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Sömuleiðis er hægt að koma nafnlausum ábendingum á framfæri í síma 800-5005.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert