Mun standa við allar ákvarðanir

Hjálmar Hjálmarsson bæjarfulltrúi í Kópavogi stækka

Hjálmar Hjálmarsson bæjarfulltrúi í Kópavogi Árni Sæberg

Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næstbesta flokksins í Kópavogi og forseti bæjarstjórnar, segir að hann muni eftir sem áður standa við allar þær ákvarðanir sem hann hafi stutt hingað til. Hann segir að sá meirihluti, sem verið er að ræða um að mynda núna, þ.e. Listi Kópavogsbúa, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, sé ekki starfhæfur.

„Það hljóta allir að sjá, nema ef til vill oddvitar þessara framboða,“ segir Hjálmar í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér fyrr í kvöld.

Þar segist hann munu vinna samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og reiknar með því að hinir 6 bæjarfulltrúarnir sem greiddu henni atkvæði muni gera það einnig.

„Málefnasamningur gamla meirihlutans verður sá rammi sem ég mun vinna eftir sem og hingað til. Ég mun tala áfram fyrir þeim málefnum sem þar koma fram,“ segir Hjálmar.

„Í raun er ekkert að í starfsemi og rekstri bæjarins sem vert er að hafa stórar áhyggjur af. Það er aðeins í efsta laginu, hjá hinum kjörnu fulltrúum, innan flokkana, sem ruglið, bullið og vitleysan hefur tekið völdin. Þessi staða er á okkar ábyrgð og það er okkar að leysa úr.“

Hjálmar hvetur alla til að kynna sér hugmyndir hans um samstarf allra flokka í bæjarstjórn. „Þar er gert ráð fyrir að framboðin skipti með sér verkum og deili ábyrgð á nefndarstjórnum og öðrum trúnaðarstörfum. Þá verði meirihlutafundir lagðir niður en í staðinn teknir upp vinnufundir oddvita allra flokka.  - Þessi vinnubrögð eru alls ekki ný af nálinni og vil ég minna á að allir flokkar unnu saman að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar þrjú ár í röð.“



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Vinsæl gönguleið er yfir Fimmvörðuháls.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gasnaglabyssa
Til sölu Hilti naglabyssa. Gasnaglabyssa GX 100. Upplýsingar í síma 8935005 ...
Þæg hross
Er með nokkra þæga hesta til sölu sem rúlla töltið, einnig nokkur trippi uppl. s...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
NICOLAI bifreiðastillingar, Faxafeni 12, sími 588 2455. Véla- og hjólastillingar...
Mitsubishi Pajero árg. 1992 til sölu.
Til sölu góður Mitsubishi Pajero árg. 1992. Bensín. Ekinn 270.000. Lítur vel út...
 
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....