Þjóðin hefur ekki jafnað sig

Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

„Svo sorglegt sem það er, hefur Hrunið leitt í ljós allt það versta sem býr í samfélagi okkar og í sjálfri þjóðarsálinni.“ Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, á vefsvæði sínu. Hún segir þjóðina ekki enn hafa jafnað sig á efnahagshruninu.

Ólína segir að orðræðan sem fengið hefur að þróast á Alþingi og í fjölmiðlum hafi virkað eins og iðusog neikvæðni og bölmóðs sem erfitt sé að komast upp úr. „Í stað þess að sýna yfirvegaða og ábyrga samstöðu um að bæta ástandið og vanda orðfæri sitt, hafa þingmenn hlaupið í skotgrafir andstæðra fylkinga og verið eins og sundruð vargahjörð.“

Hún segir stjórnarandstöðuna á Alþingi hafa gengið lengst í upphrópunum og lýðskrumi, sem hafi átt greiða leið að fjölmiðlum, og þar með eyrum almennings, heldur en ábyrg, málefnaleg umræða. „Það er nöturlegt, því þar innan búðar eru aðilar sem bera ríka ábyrgð á því hvernig fór og því ætti þeim hinum sömu að renna blóðið til skyldunnar að aðstoða við endurreisnina frekar en að standa í aðhrópum og niðurrifi og hrópa stöðugt: Úlfur! Úlfur!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert