Borginni mistekist við sameiningar
Borgaryfirvöld funduðu með foreldrum barna í Hamraskóla í Grafarvogi á miðvikudag. mbl.is/Árni Sæberg
Víða í borginni eru foreldrar ósáttir við vinnubrögð Reykjavíkurborgar við undirbúning sameininga og tilflutnings á nemendum grunnskóla. Báðir fulltrúar foreldra í einum stýrihópnum hafa sagt sig úr honum vegna ófullnægjandi svara við spurningum þeirra og ekki hafi verið hlustað á sjónarmið foreldra, segir í tilkynningu frá SAMFOKi.
Haldnir hafa verið fjölmennir fundir með foreldrum á tveimur stöðum þar sem afstaðan hefur verið skýr, foreldrar skora á borgaryfirvöld að draga þessar ákvarðanir til baka.
SAMFOK fundaði í vikunni með formönnum foreldrafélaga þeirra skóla sem standa frammi fyrir stórfelldum breytingum. Þar kom fram hörð gagnrýni á vinnubrögð borgarinnar en þó hafa foreldrar í einhverjum tilfellum tekið þá afstöðu að reyna að gera það besta úr stöðunni þrátt fyrir að hafa ekki verið sáttir við ákvörðunina í upphafi, og vinna með borgaryfirvöldum að bestu lausninni.
„Borgaryfirvöldum hefur að mestu mistekist að fá foreldra í lið með sér,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn SAMFOKs.
„Fyrir því eru nokkrar ástæður. Foreldrar upplifa sig sem þolendur en ekki þátttakendur, þeir upplifa ekki samstarfsvilja eða skilning á áhyggjum sínum vegna stórtækra breytinga á högum barna þeirra. Gefið hefur verið í og úr með ástæður þessara breytinga, ýmist er því haldið fram að fjárhagslegur ávinningur vegi þyngst eða faglegur en ekki hefur tekist að sýna fram á með óyggjandi hætti hver raunverulegur ávinningur er.
Sameiginlegur skilningur á þörfinni fyrir þessar breytingar er því ekki til staðar. Allt eru þetta mikilvægir þættir í vel heppnaðri breytingastjórnun,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn SAMFOKs.
SAMFOK segir að skortur á samráði við foreldra kristallist einna best í ákvörðun borgaryfirvalda um annars vegar að færa deild einhverfra úr Hamraskóla sem sýnir „algjört skilnings- og þekkingarleysi á aðstæðum og þörfum einhverfra barna“. Hins vegar í þeirri ákvörðun að flytja nemendur Breiðagerðisskóla tímabundið í Hvassaleitisskóla (Háaleitisskóla) án þess að ráðfæra sig við foreldra hvors skóla um sig.
„Því er haldið fram af hálfu borgaryfirvalda að ákvörðunin sé tekin í sátt við foreldra Breiðagerðisskóla þegar reyndin er sú að þeir fengu enga aðkomu að ákvörðuninni aðra en þá að skólaráð fjallaði um hana og lýsti annar tveggja fulltrúa foreldra sig mótfallinn þessari ráðstöfun. Foreldrar í Hvassaleitisskóla fá hins vegar ekki neina aðkomu að þessu þar sem fullyrt er að þessar breytingar snúist aðeins um nýtingu á húsnæði og raski ekki starfi skólans, sem eru fráleit rök. Á sama tíma er mikil óvissa og margir lausir endar vegna sameiningar Hvassaleitisskóla og Álftamýrarskóla.
SAMFOK skorar á fulltrúa Reykjavíkurborgar að staldra við, taka stöðuna upp á nýtt og endurskoða ákvarðanir um þær breytingar sem ekki hefur náðst samstaða um. Jafnviðamiklar breytingar og hér er verið að fara út í þarf að vinna í sátt við samfélagið eigi þær að verða farsælar. Velferð barnanna í borginni er í húfi.“





































