Grafalvarleg staða Sandgerðisbæjar

Sandgerði í forgrunni. stækka

Sandgerði í forgrunni. www.mats.is

Skuldir og skuldbindingar Sandgerðisbæjar nema 456% af tekjum og uppfylla ekki sveitarstjórnarlög sem tóku gildi um áramót. Þetta segja fulltrúar minnihlutans. Á fundi bæjarstjórnar fyrir helgi voru samþykktar fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 og þriggja ára áætlun.

Allir flokkar stóðu saman að gerð fjárhagsáætlunar fyrir sveitarfélagið, en þegar kom að því að gefa út sameiginlega yfirlýsingu höfnuðu fulltrúar minnihlutans því alfarið. Í bókun Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks segir að, ljóst hafi verið að grípa þyrfti til verulegra aðhaldsaðgerða í formi niðurskurðar og hækkana á álögum. Jafnframt hafi verið lögð áhersla á að tryggja störf hjá bæjarfélaginu þar sem Sandgerðisbær glími við mesta atvinnuleysi á landinu.

Þá segir: „Það er erfið ákvörðun og ekki sársaukalaus að leggja auknar álögur á íbúa en því miður óhjákvæmileg. Margir berjast í bökkum fyrir vegna fjárhagserfiðleika og atvinnumissis en við munum leggja áherslu á að tryggja velferðarkerfið til að styðja við þá sem eru verst settir. [...] Staða Sandgerðisbæjar er grafalvarleg, skuldir og skuldbindingar nema 456% af tekjum og uppfylla ekki ný sveitastjórnarlög sem tóku gildi 1. janúar 2012. Þau kveða á um að sveitarfélög megi ekki skulda meira en 150% af reglulegum tekjum.

Langt í land með að standast ákvæði laga

Samfylkingin lét einnig bóka vegna fjárhagsáætlunarinnar. Í bókuninni segir að ljóst hafi verið í upphafi kjörtímabilsins að erfitt verkefni væri að ná tökum á rekstri og skuldastöðu Sandgerðisbæjar. „Þá verður að hafa í huga að í nýjum sveitarstjórnarlögum eru settar stífar kröfur um fjármál sveitarfélaga. Í dag á Sandgerðisbær langt í land með að standast ákvæði þessara laga og eigi að viðhalda fjárhagslegu sjálfstæði sveitarfélagsins er ekki annar valkostur en að halda áfram með það verk að taka verulega til í fjármálum þess.“

Ástæða þess að svo illa er komið fyrir Sandgerði er, að mati fulltrúa Samfylkingarinnar, vöxtur sveitarfélagsins á árunum 2002-2010. Þá hafi átt sér stað gífurlega mikil uppbygging en á sama tíma jukust rekstrargjöld og skuldir með slíkum hraða að grípa verður til aðgerða í ár. „Bæjarfulltrúar S-listans gera sér fyllilega grein fyrir því að ýmsar af þeim ákvörðunum sem nú eru teknar í fjárhagsáætlunargerð ársins 2012 eru erfiðar fyrir marga í því samfélagi þar sem atvinnuleysi er mest á landinu og fjárhagsleg staða margra heimila er erfið.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu fellihýsi
Til sölu fellihýsi med fortjaldi gasmidstöd og 220voltarafm vel med farid uppl 6...
Óska eftir 3-4 herbergja íbúð á Akureyri
Ung, bráðum fjagra manna fjölskylda óskar eftir 3. - 4. herbergja íbúð á Akureyr...
HÚS TIL LEIGU Í VENTURA, ORLANDO, USA
Til leigu huggulegt hús á frábærum stað í Orlando,18h.golfvöllur/ódýrt spil,sund...
Opnaðu hliðið með símanum
Með einföldum búnaði er hægt að opna hlið og bílskúrshurðir með gsm síma. Hægt e...
 
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...