Grindavík reynir að innheimta lán
Grindavík. www.mats.is
Bæjarstjóra Grindavíkur hefur verið falið að leita allra leiða til innheimtu láns sem bærinn veitti fyrirtæki í bænum árið 2009. Að sögn bæjarstjórans var um undarlegan fjármálagjörning að ræða og er ekki getið um gjalddaga í samningnum.
Málið nær aftur til ársins 2008 þegar beiðni barst frá lifrarniðursuðuverksmiðju Ice-West um fyrirgreiðslu. Málið var skoðað allt til haustsins 2009 þegar bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti að kaupa hlutafé í fyrirtækinu Ice-West ehf. fyrir sjö milljónir króna, samkvæmt samningi sem þá lá fyrir.
Í fundargerð bæjarstjórnar frá 9. september 2009 segir að fyrir liggi ársreikningar félagsins fyrir síðustu tvö ár ásamt árshlutareikningi ársins 2009. Málið var sent til umsagnar hjá atvinnu- og ferðamálanefnd bæjarins en samþykkt samhljóða 16. september 2009. Í bókun sem fylgdi samþykktinni segir: „Eins og fram kemur í fundargerð atvinnu- og ferðamálanefndar þann 14. september sl. þá telur nefndin samkvæmt ársreikningi Ice-West ehf. að lítil áhætta virðist vera fólgin í því að leggja félaginu til hlutafé og gæti verið töluverður ávinningur fyrir bæjarfélagið að hafa fyrirtækið starfandi í bænum.“
Keypt var hlutafé að nafnvirði 318.182 krónur á sjö milljónir króna og segir í fundargerð að það sé 3,5% af heildarhlutafé félagsins. Þá segir: „Frá skráðum kaupdegi hefur Ice West endurkaupsrétt á öllu hlutafénu á sama verði með verðtryggingu og bærinn keypti hlutaféð á og hefur þann rétt í 18 mánuði frá og með kaupdegi. Ef Ice-West hyggst nýta sér kaupréttinn þarf Ice-West að kaupa allt hlutaféð til baka, en ekki einungis hluta þess.“
Engin afhending á hlutafé
Á fundi bæjarráðs Grindavíkur á miðvikudag var málið svo tekið fyrir aftur. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu gerði grein fyrir samkomulaginu sem gert var haustið 2009 og að lokum samþykkt að fela bæjarstjóra að innheimta skuldir félagsins við Grindavíkurbæ og leita allra leiða til að gæta hagsmuna bæjarsjóðs.
Í samtali við mbl.is sagði Róbert Ragnarsson bæjarstjóri að ekki hefði verið um kaup á hlutafé að ræða, en aðeins lán. Hann segir að aldrei hafi farið fram nein afhending á hlutafé og það hafi verið skilningur beggja aðila, þ.e. Grindavíkurbæjar og Ice-West, að um lán hafi verið að ræða.
Spurður hvort ekki hafi þá verið gjalddagi á lánasamningnum sagði Róbert svo ekki vera. Hann sagði fjármálagjörninginn nokkuð sérkennilegan en tekur fram að hann hafi ekki verið bæjarstjóri þegar hann var gerður.
Hvað innheimtuna varðar sagði Róbert að bærinn myndi nýta hefðbundnar leiðir svo sem lögheimtu. Viðræður hefðu staðið yfir við fyrirtækið og bærinn reynt að innheima féð en án fullkomins árangurs. Félagið starfaði þó enn í bænum.





































