Öll hesthús verði skattlögð eins

Tekist er á um álagningu fasteignaskatta á hesthús. stækka

Tekist er á um álagningu fasteignaskatta á hesthús. Morgunblaðið/Kristinn

Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga, fagnar því að Reykjavíkurborg hafi beint þeim tilmælum til Alþingis að breyta lögum sem varða fasteignaskatta á hesthús, en hann leggur áherslu á að hesthús alls staðar á landinu verði skattlögð með sama hætti.

Haraldur segir að hestamenn séu í nokkur ár búnir að vera að þrýsta á Samband íslenskra sveitarfélaga og ráðherra á um að tekið verði á þessu máli.

Lögin sem um er deilt eru frá árinu 1995, en 2005 kom fyrst upp ágreiningur um skattlagningu hesthúsa þegar Árborg ákvað að færa hesthús í þéttbýli úr A-flokk í C-flokk sem þýddi verulega hækkun á fasteignagjöldum. Í kjölfarið fór málið til yfirfasteignamatsnefndar, en hestamenn töpuðu málinu þar.

Haraldur segir að þessi niðurstaða þýði að í Árborg séu hesthús sem eru staðsett með um 200 metra millibili skattlögð með tvennum hætti. Hann segir að í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsbæ hafi hesthús verið færð úr A-flokki í C-flokk, en skattprósentunni hafi samt ekki verið breytt. Hestamenn í þessum sveitarfélögum séu því að greiða sömu eða svipaða fasteignaskatta og áður eða á bilinu 0,5-0,65%. Reykjavíkurborg hafi hins vegar fært hesthús úr A-flokki í C-flokk og við það hafi fasteignaskattsprósenta farið úr 0,225% í 1,65%.

Haraldur segir þessa mismunun óþolandi. Það eigi að skattleggja alla hestamenn eins, óháð því hvar þeir búa. „Hesthús er hesthús hvar sem það er staðsett,“ segir hann.

Haraldur segir gott ef Alþingi tekur af skarið í þessum efnum, en hann hefur áhyggjur af því að þingið fari að reyna að skattleggja hesthús eftir því hvort atvinnurekstur á sér stað í hesthúsinu eða hvort það er notað til tómstunda. Hann bendir á að mörkin milli þessa séu stundum óljós. Sum hesthús séu hluta úr árinu notuð til atvinnurekstrar. Hann segir líka að ef hesthús séu notað til atvinnurekstrar eigi að skattleggja þann atvinnurekstur með almennum hætti.

Haraldur segir að hestamenn ætli að höfða mál fyrir héraðsdómi til að fá úrskurði yfirfasteignamatsnefndar breytt. Í úrskurðinum hafi ekki verið fjallað um það álitamál hvort heimilt sé að mismuna hestamönnum eftir því hvar þeir búa. Á þetta verði látið reyna fyrir héraðsdómi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu þessi flotta vespa 125c
Ekinn 780 km. skoðuð án ath-semda 2012 og mjög vel með farinn. Nú er tækifærið a...
Bambusstólar
Til sölu 2 mjög vandaðir og góðir bambusstólar, Lækkað verð 15000 kr. stk. Uppl...
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003 EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
DÍSEL BMW 525 station, sjálfskiptur, nýskoðaður 2013
Til sölu Bmw 525 dísel station nýskráður 4.12.2002, nýskoðaður 2013, sjálfskiptu...
 
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...