Kærð fyrir ólögmæta háttsemi
Hjón hafa kært fasteignasala og fasteignasöluna Mikluborg til eftirlitsnefndar fasteignasala fyrir ólögmæta háttsemi við verðmat á íbúð þeirra í Reykjavík. Þá hafa hjónin tilkynnt Fjármálaeftirlitinu um meinta ólögmæta háttsemi Dróma, sem er í eigu slitastjórnar SPRON.
Lögmaður hjónanna staðfestir þetta í samtali við mbl.is, en kæran og tilkynningin var send til eftirlitsnefndarinnar og FME í síðustu viku.
Í kærunni kemur fram að eign hjónanna hafi fljótlega orðið yfirveðsett í kjölfar bankahrunsins 2008. Áhvílandi lán hafi upprunalega verið erlend gjaldeyrislán sem nú hafa verið dæmd ólögmæt. Þrátt fyrir leiðréttingu gjaldeyrislánanna sé eignin ennþá veðsett langt umfram markaðsvirði og greiðslubyrði því þung.
Hjónin óskuðu eftir því við lánardrottna sína, sem eru m.a. Drómi og Íslandsbanki, að samþykkt yrði svokölluð 110% leið þar sem áhvílandi veðlán væru færð niður í 110% af markaðsverðmæti eignar eða fasteignamatsverði.
25% munur á verðmötum
Fram kemur í kærunni að í lok september á síðasta ári hafi fasteignasalan Stórborg metið eignina, að beiðni Íslandsbanka, á 30 milljónir kr. miðað við núverandi ástand.
Fasteignasalan Mikluborg mat jafnframt eignina en að beiðni Dróma. Það lá fyrir 24. nóvember sl. og hljóðaði upp á 37,5 milljónir.
Í kærunni segir, að hinn mikli verðmunur á verðmötunum tveimur sé með öllu órökstuddur og óútskýrður. Þá hafi Drómi miðað við hærra matið í samskiptum sínum við hjónin sem sé óhagstæðara fyrir þau.
„Sérstaka athygli vekur því að verðmat Mikluborgar er 25% hærra en mat Stórborgar á sömu eign. Engar þær forsendur koma fram í mati Mikluborgar sem varpað geta ljósi á hvers vegna svo miklu munar á mötunum tveimur,“ segir í kærunni til eftirlitsnefndar fasteignasala.
Vanhæfi sökum hagsmunatengsla
Hjónin segja að hagsmunatengsl séu á milli Mikluborgar og Dróma, en fasteignasalan hafi í einkasölu húseignir Dróma að verðmæti mörg hundruð milljónir króna.
„Svo varhugaverð og stórtæk eru hagsmunatengslin í máli þessu að Miklaborg og fasteignasalar á vegum Mikluborgar eru vanhæfir til að taka að sér slíkt verðmat,“ segir í kærunni.
Hagsmunatengslin eru sögð hafa haft mikil áhrif á verðmatið til „stórkostlegs tjóns“ fyrir hjónin, eins og það er orðað í kærunni. Hafa þurfi í huga að matið sé framkvæmt með það fyrir augum að það sé notað til grundvallar hinnar svokölluðu 110% leiðar. „Þar með eru það hagsmunir bankans að verðmatið sé hátt til að annað hvort komi til minni lækkunar skulda eða jafnvel engrar lækkunar.“
Hjónin krefjast þess að umræddur fasteignasali og fasteignasalan Miklaborg verði látin sæta agaviðurlögum. Þau halda því fram að í háttseminni felist alvarlegt brot gegn starfsskyldum fasteignasala og þar með alvarlegt brot gegn lögum um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa. Segir að brotin virðist framin í auðgunarskyni eða auðgunarvon á kostnað hagsmuna hjónanna.
|
|
Kæran til eftirlitsnefndar fasteignasala |





































