PIP-fyllingar verði fjarlægðar
Landlæknir telur að fjarlægja eigi PIP-brjóstafyllingar úr þeim íslensku konum sem þær bera. Þetta var ákveðið eftir að sérfræðingahópur skilaði skýrslu um fyllingarnar. Landlæknir segir að um sé að ræða falsaða púða.
Það var sérfræðingahópurinn SCENIHR sem gaf út skýrsluna, en skammstöfunin stendur fyrir vísindanefnd Evrópusambandsins um nýjar og vaxandi heilsuvár.
Í framhaldi af skýrslunni hefur landlæknir ásamt starfsfólki embættisins og velferðarráðuneytisins og öðrum með faglega þekkingu á málefninu skoðað helstu niðurstöður skýrslunnar og metið þær í ljósi stöðunnar hér á Íslandi.
Helstu niðurstöður eru:
• Konur með PIP-brjóstapúða hafa falsaða ígrædda púða í líkama sínum. Þessir púðar eru með iðnaðarsílíkoni og samkvæmt skýrslunni er efnasamsetning þeirra mjög breytileg.
• PIP-brjóstapúðar hafa hylki sem vísbendingar eru um að leki fyrr en hylki annarra brjóstapúða.
• Við leka frá PIP-brjóstapúða er staðfest að bólgusvörun er meiri samanborið við aðra púða og brottnám því erfiðara vegna þessa.
• Vegna bólgunnar sem myndast og áhrifa hennar á nærliggjandi vefi telja hérlendir sérfræðingar að minni líkindi séu til þess að mögulegt sé að setja inn nýja púða samhliða brottnámi gamalla púða.
• Það er mat skýrsluhöfunda að fyrirbyggjandi brottnám brjóstapúða sé skaðminna fyrir konur en brottnám púða þegar þeir leki.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir mat landlæknis byggt á faglegum forsendum og að velferðarráðuneytið muni bregðast við í samræmi við þær ábendingar sem þar komi fram.
Unnið verður að skipulagningu viðbragða og framkvæmd aðgerða á næstu dögum og mun ráðherra taka málið fyrir á fundi ríkisstjórnar næstkomandi þriðjudag.
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 14. febrúar 2012, Innlent ESB upplýst um háa lekatíðni
- Þriðjudagur, 14. febrúar 2012, Innlent Bandarískir brjóstapúðar í stað PIP
- Laugardagur, 4. febrúar 2012, Innlent Kostar allt að 88 milljónir
- Þriðjudagur, 17. janúar 2012, Innlent Endurskoða áætlun ef þörf krefur
- Föstudagur, 10. febrúar 2012, Innlent Um 65% með leka púða
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































