Rekstur hvers lífeyrissjóðs skoðaður
Lífeyrissjóðunum er ætlað að safna iðgjöldum í sjóði, ávaxta þá og greiða síðan lífeyri til sjóðsfélaga við starfslok. mbl.is/Helgi Bjarnason
Nefnd sem falið var að rannsaka lífeyrissjóðina fór ofan í rekstur hvers og eins sjóðs. Nefndin mun gera grein fyrir mati sínu á sjóðunum hverjum fyrir sig í um 800 blaðsíðna skýrslu sem kynnt verður eftir hádegið í dag.
Hinn 24. júní 2010 samþykkti stjórn og varastjórn Landssamtaka lífeyrissjóða að fara þess á leit við ríkissáttasemjara að hann skipaði þriggja manna nefnd til að gera úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og áhættumati við fjárfestingar lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins í október 2008. Þingmannanefnd, sem fór yfir rannsóknarskýrslu Alþingis, hafði áður hvatt til þess að slík rannsókn færi fram.
Í nefndina voru skipaðir: Hrafn Bragason hæstaréttardómari, formaður, Héðinn Eyjólfsson viðskiptafræðingur og Guðmundur Heiðar Frímannsson heimspekiprófessor. Með nefndinni hafa starfað Kristján Geir Pétursson lögfræðingur og Þórunn Ansnes viðskiptafræðingur.
Nefndin hefur nú lokið störfum með útgáfu viðamikillar skýrslu sem tekur til starfsemi og fjárfestinga allra 32 aðildarsjóða Landssamtaka lífeyrissjóða á árunum 2006-2009.
Skýrslan er 800 blaðsíður og er í fjórum bindum. Í fyrri hluta skýrslunnar er gerð grein fyrir starfsemi lífeyrissjóðanna almennt, en í síðari hluta skýrslunnar er rekstur, fjárfestingar og áhættumat einstakra sjóða skoðað. Nefndin leggur síðan mat á rekstur hvers sjóðs fyrir sig.
Ítarlega verður fjallað um skýrsluna á mbl.is í dag og í Morgunblaðinu á morgun.
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 17. apríl 2012, Innlent Engin þörf á nýrri rannsókn
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Innlent Rannsókn á lífeyrissjóðunum lokið
- Laugardagur, 4. febrúar 2012, Innlent Vill allsherjarendurskoðun
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Innlent VR skipar ráðgjafanefnd
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Innlent Segir skýrsluna full af rangfærslum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































