Vilja dýpri umræðu um aðildarferlið
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks fóru fram á það í upphafi þingfundar á Alþingi í morgun, að efnt yrði til umræðu um stöðuna í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, ítarlegri umræðu en þingmenn hafa fengið á undanförnum mánuðum.
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, benti á að aðstæður hefðu breyst gríðarlega frá því sótt var um aðild að Evrópusambandinu, bæði hér á landi og í Evrópu. Því beindi hann því til forseta og utanríkisráðherra að efna til viðameiri umræðu um aðildarviðræðurnar. Birgir sagði nauðsynlegt að fá meiri dýpt í umræðuna en fengist hefði hingað til.
Undir þetta tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, og sagði brýnt að umræðan kæmist sem fyrst á dagskrá. Hún sagðist ekki lengur gera sér grein fyrir því hvort Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra væri talsmaður þess að ganga inn í Evrópusambandið, og vísaði í því sambandi á grein sem hún ritaði ásamt formanni Vinstri-grænna, en þar sagði að verið væri að kanna kosti og galla aðildar í því ferli sem nú stæði yfir. „Það eru ekki aðildarviðræður,“ sagði Þorgerður sem vill fá á hreint hvort Íslendingar séu ekki örugglega í aðildarviðræðum sem ljúki með samningi og þjóðaratkvæðagreiðslu um hann.
Einn stjórnarþingmaður lét sig málið varða. Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tók undir með þingmönnum Sjálfstæðisflokks og sagðist telja að dýpri umræða gæti orðið til þess að andstæðingar aðildar að Evrópusambandinu gætu þurft að hugsa mál sitt betur, en umræðan hefði oftar en ekki farið fram í upphrópunum af þeirra hálfu.
Bloggað um fréttina
-
Páll Vilhjálmsson ESB er fyrir heimskingja og Samfylkingu -
Sleggjan og Hvellurinn Alþingi um umræður um ESB.
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. nóvember 2011, Innlent Björn og Friðrik hjuggu á hnútinn
- Þriðjudagur, 4. október 2011, Innlent Vilja atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna
- Sunnudagur, 15. apríl 2012, Innlent Eðlilegt að ræða ESB-samskipti
- Þriðjudagur, 6. september 2011, Innlent ESB hefur fallist á samningaleið Íslands
- Miðvikudagur, 28. mars 2012, Innlent Þingmenn sakaðir um klækjabrögð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































