Læknar ekki sammála
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, segir að skiptar skoðanir séu meðal lækna um hvort rétt sé að setja nýja brjóstapúða strax í konur sem láta fjarlæga gamla púða. Hún segir þetta valda óöryggi meðal kvennanna.
Konur með brjóstapúða eru skoðaðar hjá Krabbameinsfélaginu á fimmtudögum og föstudögum. Ragnheiður segist reikna með að um 40 konur verði skoðaðar á viku. Á næstu dögum geta konur á Akureyri sem eru með brjóstapúða einnig komið í skoðun þangað.
Yfir 80% með leka brjóstapúða
Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum eru yfir 80% af þeim konum sem fóru í skoðun í síðustu viku með leka brjóstapúða. Þetta er miklu hærra hlutfall en reiknað var með. Ragnheiður segir að sumir púðarnir hafi lekið mikið en aðrir lítið. Eftir skoðun fari konurnar í viðtöl við lækna á Landspítala sem meti hvernig eigi að bregðast við.
Ragnheiður segir að skurðaðgerðin kalli á svæfingu. „Þess vegna hafa sumar konurnar farið fram á að þetta verði gert í einni aðgerð, þ.e. að púðarnir verði fjarlægðir og nýir settir strax í staðinn. Læknarnir hafa hins vegar skiptar skoðanir á því hvort rétt sé að gera þetta í einni aðgerð eða tveimur, sem veldur konunum óöryggi.“
Nokkur umræða hefur verið um það hvort PIP-brjóstapúðar auki líkur á því að konur fái brjóstakrabbamein. „Það er ekkert sem við höfum séð sem bendir til þess að líkur á að fá krabbamein aukist með þessum púðum. Það er hins vegar talað um bólgur, roða og ertingu í þessu sambandi, en það hefur ekkert komið fram sem bendir til aukningar krabbameins,“ segir Ragnheiður.
Stjórnvöld hafa ákveðið að bjóða konum sem eru með PIP-brjóstapúða að fjarlægja þá. Aðgerðirnar verða gerðar á Landspítala en ekki er gert ráð fyrir að nýir púðar verði settir í brjóstin í sömu aðgerð.
Að mati landlæknis er ekki rétt að koma fyrir nýjum púðum í sömu aðgerð og þegar gömlu púðarnir eru fjarlægðir.
Svo virðist sem sílikonið sem notað var í PIP-púðana eigi auðveldara með að leka en það sílikon sem almennt er notað í brjóstapúða.
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 4. febrúar 2012, Innlent Kostar allt að 88 milljónir
- Föstudagur, 10. febrúar 2012, Innlent Um 65% með leka púða
- Þriðjudagur, 14. febrúar 2012, Innlent ESB upplýst um háa lekatíðni
- Mánudagur, 6. febrúar 2012, Innlent Hafi samband við landlækni
- Þriðjudagur, 14. febrúar 2012, Innlent Bandarískir brjóstapúðar í stað PIP
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































