Mátti skoða tölvupóst starfsmanns
Karl K. Karlsson á ekki að fara í pósthólf starfsfólks fyrr en settar verða reglur um meðferð tölvupósts. mbl.is/Ásdís
Innflutningsfyrirtækinu Karli K. Karlssyni var heimilt að skoða tölvupóst starfsmanns í þeim tilgangi að kanna hvort ólögmætir viðskiptahættir hefðu átt sér stað. Þetta er mat Persónuverndar sem þó fer fram á að fyrirtækið setji sér starfsreglur um meðferð tölvupósts.
Starfsmaðurinn, kona, kvartaði við Persónuvernd í febrúar 2011. Sagði hún fyrrverandi vinnuveitanda sinn, Karl K. Karlsson ehf., eða öllu heldur stjórnarformann fyrirtækisins, hafa brotið gegn lögum um persónuvernd þegar hann skoðaði tölvupóst hennar án þess að gefa henni færi á að vera viðstödd.
Póst- og fjarskiptastofnun tók málið einnig til meðferðar og tók Persónuvernd þá ákvörðun í ágúst sl. að hún myndi ekki fjalla um málið fyrr en Póst- og fjarskiptastofnun hefði afgreitt það.
Í bréfi Póst- og fjarskiptaþjónustunnar vegna málsins segir, að það sé sérstakt álitamál hvort vinnuveitandinn fyrrverandi hafi haft heimild til að opna póst sem stílaður var á konuna og kynna sér efnis hans.
Persónuvernd tók málið til skoðunar og sagði í bréfi lögmanns Karls K. Karlssonar að fyrirtækið hefði ekki sett sérstakar reglur um notkun starfsmanna á tölvu- og hugbúnaði fyrirtækisins til einkanota, þ.m.t. til einkatölvupóstsendinga. „Umbjóðandi minn hefur hins vegar litið svo á, og gert starfsmönnum grein fyrir þeirri skoðun, að hann líti svo á að tölvupóstur starfsmanna sé eign fyrirtækisins og að ekki sé ætlast til þess að starfsmenn fyrirtækisins noti netföngin fyrir einkapóst.“
Fékk tækifæri til að eyða einkapósti
Tilgangur þess að fara inn í tölvupósthólf konunnar var að kanna hvort hún hefði viðhaft ólögmæta viðskiptahætti eftir að hún lét af störfum hjá fyrirtækinu. Persónuvernd segir í niðurstöðu sinni að ekki verði annað ráðið af gögnum málsins en að um hafi verið að ræða tilviksbundna skoðun á tölvupósti sem fram hafi farið í skýrum og málefnalegum tilgangi.
Þegar kom að skoðun þess hvort brotið hefði verið á konunni með því að bjóða henni ekki að vera viðstödd skoðunina bendir Persónuvernd á, að konunni hafi verið gert að skila tölvu, ásamt öllum tölvugögnum sem tengst hefðu starfi hennar fyrir fyrirtækið, þegar hún lét af störfum. „Er það mat Persónuverndar að kvartanda hafi með því verið gefinn kostur á að eyða einkapósti sínum þegar hún lauk störfum hjá fyrirtækinu. Því hafi Karli K. Karlssyni hf. ekki verið nauðsynlegt að bjóða henni að vera viðstödd þegar tölvupóstur hennar var skoðaður, enda hafi Karl K. Karlsson hf. mátt gera ráð fyrir að öllum einkapósti hefði þá verið eytt af hennar hálfu.“
Persónuvernd leggur það þó fyrir Karl K. Karlsson að stöðva frekari skoðun á skeytum í pósthólfum starfsmanna þar til settar verða reglur um meðferð tölvupósts í samræmi við lög, eða staðið að fræðslu fyrir starfsfólk með öðrum hætti.





































