1.300 tonn í fjórum köstum

Víkingur AK-100 stækka

Víkingur AK-100 www.hbgrandi.is

Víkingur AK er nú á leið til Akraness eftir vel heppnaða veiðiferð á loðnumiðin á Grímseyjarsundi. Þar fengust um 1.300 tonn af góðri loðnu í fjórum köstum frá því í gærmorgun og fram til kvölds. Þetta kemur fram á vef HB Granda sem gerir Víking út.

Að sögn Hlyns Gunnarssonar stýrimanns á Víkingi er ekki annað hægt að segja en að þetta veiðisvæði hafi tekið vel á móti Víkingi því þegar skipið hefur verið á miðunum hefur fengist ágætur afli en þess á milli hefur veiðin tregast til muna.

Eins og fram kom í síðustu viku fengu skipverjar á Víkingi fréttir af loðnugöngu á Grímseyjarsundi eftir þorrablót sem Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri á Lundey NS, sótti um fyrri helgi. Víkingur fór til veiða á svæðinu um miðja sl. viku og fékk þá 1.400 tonna afla. Núna var aflinn litlu minni.

„Við höfum haft heppnina með okkur og hitt á loðnuna í þessum tveimur veiðiferðum. Það má segja að Grímseyjarsundið hafi bjargað okkur í því tíðarfari sem verið hefur nú í byrjun mánaðarins því það hefur verið bræla fyrir austan land þar sem skipin hafa verið að reyna fyrir sér,“ segir Hlynur en að hans sögn var sjólaust á Grímseyjarsundi í gær þótt veðrið væri fráleitt gott.

„Það var hífandi rok á köflum og alls ekki þægilegt að stunda veiðarnar en það bjargaði öllu að við vorum þarna í aflandsvindi og fyrir vikið náði ölduhæðin sér ekki upp,“ segir Hlynur en er haft var samband við hann var Víkingur staddur úti fyrir Súgandafirði. Að sögn Hlyns brældi töluvert í nótt sem leið enda náði vindhraðinn meira en 20 m/s á leiðinni.

Af öðrum uppsjávarskipum HB Granda er það að frétta að Ingunn AK er á Grímseyjarsundi og Faxi RE er á leiðinni þangað frá Vopnafirði. Lundey NS er austan við Papey og að sögn Arnþórs Hjörleifssonar skipstjóra er skipið útbúið með grunnnót og þess er nú beðið að loðnan skili sér upp á grunnið. Það hefur hún ekki gert af neinum krafti fram að þessu en menn eru vongóðir um að þess verði ekki langt að bíða.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Nauthólsvík í dag.

Veðrið leikur við landsmenn

16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um Hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Avensis 1800, árg. 2006 5 gíra.
Fæst á aðeins 1200 þús. stgr. Ek. 175 þús. Gott lakk og vel með farinn bíll. E...
Hænsnahús Til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
VANTAR BÍLSKÚR EÐA SVPAÐ PLÁSS
Mig vantar bílskúr eða svipað pláss undir TRÉFÖNDUR Í MOSFELLSBÆ EÐA NÁGRENNI ke...
Volvo Penta báta vél til sölu.48 hp
Vél í lagi , 48 hestafla nýtekinn úr bát vegna stækkunar á vél ca árg 86 Verð c...
 
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...