Bæta þarf eftirlit með samningum

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur m.a. gert skuldbindandi samning við Ríkisútvarpið ohf.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur m.a. gert skuldbindandi samning við Ríkisútvarpið ohf. mbl.is

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert fjölmarga samninga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum úr ríkissjóði. Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi eftirlit með framkvæmd þessara samninga sem og ýmislegt annað sem tengist umsýslu þeirra. Ráðuneytið vinnur að endurbótum á samningamálum sínum.

Á undanförnum árum hafa einstök ráðuneyti gert samninga við samtök, einkaaðila og sveitarfélög um að þessir aðilar taki að sér verkefni gegn greiðslum úr ríkissjóði. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um 71 slíkan samning mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Áætlað er að kostnaður við þessa samninga hafi numið um 10,6 milljörðum króna á síðasta ári. Þar af var rúmlega helmingur vegna samninga við Ríkisútvarpið ohf., Háskólann í Reykjavík ehf. og Menntafélagið ehf. (Tækniskólann).

Í skýrslunni kemur fram að eftirlit ráðuneytisins með framkvæmd samninganna sé ekki að öllu leyti í samræmi við ákvæði þeirra, T.d. hafi formlegar úttektir ekki verið gerðar. Þá hafi heimildir til endurskoðunar samninga sjaldan verið nýttar og frestur til endurnýjunar ekki virtur í öllum tilvikum. Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneytið til að bæta úr þessum annmörkum og að samræma eftirlit sitt með skuldbindandi samningum.

4,6 milljarðar greiddir samkvæmt útrunnum samningum

Bent er á að ekki séu gildir samningar um öll verkefni sem mennta- og menningarmálaráðuneytið greiðir fyrir. Á árinu 2011 var þannig áætlað að greiða samtals 4,6 milljarða króna samkvæmt 35 útrunnum og tveimur ógildum samningum. Að mati Ríkisendurskoðunar þarf að endurnýja útrunna samninga hið fyrsta og tryggja að greiðslur byggi ávallt á gildum samningum. Þá þarf ráðuneytið að skjalfesta verklagsreglur um gerð og umsýslu skuldbindandi samninga og bæta yfirsýn um þá.

Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneytið til að tengja greiðslur samninga við árangur, frammistöðu eða framvindu verkefna. Einnig telur stofnunin að móta þurfi reglur um úttektir á framkvæmd samninga og endurskoðun þeirra á samningstíma og fylgja þeim eftir.

Í skýrslunni kemur fram að ráðuneytið vinni að endurbótum á samningamálum sínum og fagnar Ríkisendurskoðun því.


Ríkisendurskoðun ákvað fyrr á þessu ári að kanna framkvæmd, eftirlit og eftirfylgni ráðuneyta með samningum sem þau hafa gert við aðila utan ríkisins og skilgreindir eru sem „skuldbindandi samningar“ í fjárlögum. Birt verður sérstök skýrsla fyrir hvert ráðuneyti og er skýrslan um skuldbindandi samninga mennta- og menningarmálaráðuneytisins sú sjötta í röðinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Nauthólsvík í dag.

Veðrið leikur við landsmenn

16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um Hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Aliner Expedition Nýskr 3/2008 Hlaðið aukabúnaði
Sólarsella Loftpúðafjöðrun, Nýtt fortjald, grjótgrind, 2 gaskútar, 2 rafgeymar. ...
TOYOTA PRIUS 7/2008 EKINN 64000 KM
Ti sölu mjög gott eintak af Prius,einn eigandi 100% þjónusta áett verð 2.790.000...
Tilboð á Oolong- og Pu-erh tei
Er líka á Facebook: Tesíða Jónínu Ragnars http://www.facebook.com/profile.php...
Vilt Þu Aukatekjur
1 ár hysing + .com url + website builder = 25000 isk http://www.extrapaid.com/...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...