Beinverkir og vanlíðan í öndunarfærum
Inflúensan hefur lagt marga landsmenn í rúmið. Sverrir Vilhelmsson
Inflúensufaraldur herjar nú á landsmenn. Um er að ræða inflúensu af stofninum H3N2 og þeir sem sýkjast eru yfirleitt með hita í 3-4 daga.
„Inflúensan hefur verið í gangi í smátíma og virðist vera á nákvæmlega sama tíma og í fyrra,“ segir Þórólfur Guðnason, yfirlæknir hjá sóttvarnarlækni. „Fólk smitast með úðasmiti og snertismiti og það tekur stuttan tíma að verða veikur, yfirleitt finnur fólk fyrir einkennum 2-3 dögum eftir smit.“
Þórólfur segir að fólk finni fyrir háum hita, beinverkjum, vanlíðan í öndunarfærum og særindum í hálsi. Að auki geti börn fengið magaóþægindi og niðurgang.
„Flestir eru með hita í 3-4 daga, sumir lengur. En svo getur fólk fundið fyrir einkennum í öndunarfærum lengur,“ segir Þórólfur. Hann segir dæmi þess að fólk hafi fengið lungnabólgu og að ung börn hafi fengið eyrnabólgur upp úr flensunni. „Ég veit samt ekki til þess að neinn hafi verið lagður inn vegna flensunnar í ár.“
Alltaf stór hluti þjóðarinnar sem sýkist
Hann segir að alltaf sé nokkuð stór hluti landsmanna sem leggst í rúmið vegna flensu, en hefur ekki tölur handbærar um það, því að aðeins hluti tilfella séu skráð. „En það er alltaf góður hluti þjóðarinnar sem sýkist, sér í lagi þeir sem ekki fá bólusetningu.“
Að sögn Þórólfs eru seldir um 50 þúsund skammtar af bóluefni gegn inflúensu á hverju ári, en það gefi ekki rétta mynd af því hversu margir fái slíkar bólusetningar. Hann segir bólusetningar veita 70 - 90% vörn gegn þeirri inflúensu sem bólusett er fyrir, en veikist fólk geti bólusetningin gert veikindin vægari. „Málið er, að núna eru a.m.k. 4-5 aðrar veirusýkingar í öndunarfærum að ganga og það er bólusett við einni.“
Þórólfur segir inflúensulyf geta virkað með ágætum séu þau tekin snemma í sjúkdómsferlinu.
Innlent »
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 4. janúar 2011, Innlent Bólusetning dregur úr inflúensu
- Mánudagur, 13. febrúar 2012, Innlent Inflúensan á fleygiferð
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Miðvikudagur, 25. apríl 2012, Innlent Gullæði hefur gripið um sig á Íslandi
- Laugardagur, 26. febrúar 2011, Innlent Lærðu ekki af Skotum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































