EasyJet flýgur til Íslands allt árið
easyJet mbl.is/Skapti
Breska lágfargjaldaflugfélagið EasyJet hefur ákveðið að fljúga áfram á milli Íslands og Lundúna næsta vetur. Er sú ákvörðun að fljúga til Íslands allt árið tekin þar sem flugleiðin hefur fengið góðar viðtökur, bæði hér á landi og í Bretlandi, segir í tilkynningu.
Yfir átta þúsund sæti hafa selst hingað til en fyrsta vél flugfélagsins hingað til lands fer í loftið 27. mars nk. Áhugi Íslendinga var töluvert meiri en gert var ráð fyrir. Flogið verður þrisvar í viku; á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum.
„Við erum mjög ánægð með viðtökurnar sem EasyJet hefur fengið á Íslandi og við munum halda áfram að gera viðskiptavinum okkar kleift að ferðast milli Reykjavíkur og London með auðveldum og ódýrum hætti næsta vetur,“ er haft eftir Hugh Aitken, framkvæmdastjóra viðskipta EasyJet í Bretlandi, í frétt frá félaginu.
Í tilkynningunni segir að EasyJet reki stærsta flugleiðakerfi í Evrópu og sé leiðandi á 100 stærstu leiðum Evrópu og 50 stærstu flugvöllum Evrópu. EasyJet fljúgi yfir 600 flugleiðir milli 129 flugvalla í 29 löndum. Yfir 300 milljónir Evrópubúa búa innan klukkustundar aksturs við flugvöll sem EasyJet flýgur frá sem er meira en nokkurt annað flugfélag, segir í tilkynningunni.
Innlent »
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 27. mars 2012, Innlent Fyrsta vél easyJet lent í Keflavík
- Þriðjudagur, 27. mars 2012, Innlent EasyJet flýgur fyrsta flugið til Íslands
- Miðvikudagur, 9. nóvember 2011, Innlent EasyJet flýgur til Íslands
- Miðvikudagur, 9. nóvember 2011, Innlent Höfum horft lengi á Ísland
- Mánudagur, 26. mars 2012, Innlent Ferðamenn úti um allt
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































