Gagnaver Verne Global opnað
Gagnaver Verne Global er opnað í dag að Ásbrú í Reykjanesbæ. Nú eru liðin tæp fjögur ár frá því fyrirtækið keypti stórar byggingar af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar.
Fram kemur í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu að síðan þá hafi verið markvisst unnið að uppbyggingu á alþjóðlegu gagnaveri sem selji þjónustu sína til stórra fyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu.
Segir að áform Verne gangi út á markvissa stækkun og að árið 2017 verði gagnaverið fullbúið í fjórum byggingum. Þegar rekstur verði kominn á fullan skrið sé reiknað með að 100 störf skapist hjá fyrirtækinu.
Með tilkomu gagnaversins skapist jafnframt ýmis tækifæri fyrir fyrirtæki sem nýti sér þjónustu gagnavera að staðsetja sig nálægt gagnaverinu á Ásbrú. Allar tengingar séu með besta móti bæði með tilliti til rafmagns og gagnatenginga.
„Fyrsti viðskiptavinur Verne Global er bandaríska fyrirtækið Datapipe en það sérhæfir sig í umhverfisvænum lausnum í upplýsingatækni. Umhverfisstofnun Bandaríkjanna hefur veitt fyrirtækinu viðurkenningu vegna umhverfisstefnu þess og forstjóri Datapipe, Robb Allen, segir að Verne gefi fyrirtækinu kost á því að halda áfram forystu í umhverfismálum.
Tilkoma alþjóðlegs gagnaversiðnaðar á Íslandi er í fullu samræmi við hina nýju heildstæðu orkustefnu sem unnið hefur verið að undanfarin ár og var nýlega lögð fram til kynningar á Alþingi. Einnig fellur slíkur iðnaður vel að þeirri stefnumótun sem unnið er að varðandi beina erlenda fjárfestingu á Íslandi. Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum unnið markvisst að því að kynna Ísland sem áhugaverðan kost fyrir alþjóðleg gagnaver og er nú ánægjulegt að sjá fyrsta alþjóðlega gagnaverið taka formlega til starfa,“ segir í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu.
Innlent »
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent Nýir samstarfsaðilar kynntir
- Laugardagur, 15. október 2011, Innlent Gagnaver Verne Global er komið
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent CCP og GreenQloud semja við Verne
- Þriðjudagur, 31. janúar 2012, Innlent Kynna alþjóðlega viðskiptavini við opnun gagnavers Verne
- Sunnudagur, 16. október 2011, Innlent Uppskipun á gagnaveri í Helguvík
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































