Hjartaþegi hvetur þingheim
„Það sem vakir fyrir mér er að fá íslensku þjóðina til að vera gjafmildari á líffæri og að stytta bið einstaklinga eftir nýjum líffærum vegna veikinda sem ekki er hægt að lækna á annan máta,“ segir Kjartan Birgisson hjartaþegi, sem í morgun afhenti þingheimi áskorun um að taka frumvarp um líffæragjafir á dagskrá þingsins sem allra fyrst.
Siv Friðleifsdóttir alþingismaður lagði fram þingsályktunartillögu þessa efnis, en með frumvarpinu er Alþingi ætlað að fela velferðarráðherra að láta semja frumvarp sem geri ráð fyrir „ætluðu samþykki“ við líffæragjafir í stað „ætlaðrar neitunar“, þannig að látinn einstaklingur verði sjálfkrafa líffæragjafi nema hinn látni hafi látið í ljós vilja til hins gagnstæða.
„Við viljum opna augu þjóðarinnar fyrir þessu, reyndar held ég að Íslendingar séu mjög jákvæðir gagnvart líffæragjöfum, en það er nokkrum vandkvæðum bundið að skrá sig,“ segir Kjartan.
Sjálfur hefur hann þurft á líffæragjöf að halda, en hann fór í hjartaskiptaaðgerð í Gautaborg í Svíþjóð síðastliðið haust. „Ég var með hjartabilun á lokastigi, það var búið að reyna að laga það. En síðan var svo komið að það var ekki lengur hægt að komast hjá því að skipta um, hjartað var komið á endastöð.“
Innlent »
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 31. janúar 2012, Innlent „Spurning um mannslíf“
- Mánudagur, 30. janúar 2012, Innlent Gert verði ráð fyrir „ætluðu samþykki“
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Fimmtudagur, 3. maí 2012, Innlent Erfitt siðferðilegt álitamál
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































