Iðnaðarlögin verði endurskoðuð
Lagt er til í nýrri skýrslu að iðnaðarlögin verði endurskoðuð með gerð nýs lagafrumvarps og að löggiltar iðngreinar verði framvegis tilgreindar í iðnaðarlögum í stað reglugerðar. Þetta eru niðurstöður nefndar sem iðnaðarráðherra skipaði til að skoða hugsanlega endurskoðun iðnaðarlaga.
Nefndin hefur skilað skýrslu með tillögum sínum til ráðherra og nú fara tillögurnar í opið umsagnarferli til 19. mars.
Í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu segir að nefndin leggi til að iðnaðarlögin verði endurskoðuð og að skoðað verði sérstaklega hvaða iðngreinar hafi tekið slíkum breytingum að ekki teljist lengur málefnalegar forsendur fyrir löggildingu þeirra.
Mælir nefndin í því sambandi með því að aðeins þær iðngreinar sem telja verður nauðsynlegt að veita lögverndun á grundvelli ríkra almannahagsmuna verði framvegis felldar undir flokk löggiltra iðngreina, enda felur löggilding iðngreinar í sér skerðingu á atvinnufrelsi.
Fram kemur í skýrslunni að nefndin hafi sérstaklega skoðað hvaða löggiltar iðngreinar séu kenndar á Íslandi út frá upplýsingum sem liggi fyrir um námsframboð iðngreina. Sú skoðun hafi leitt í ljós að nokkrar iðngreinar hafi ekki verið kenndar hérlendis á síðustu árum. Er þar m.a. um að ræða: Málmsteypu, mótasmíði, skipa- og bátasmíði, kæli- og frystivélavirkjun, kökugerð, feldskurð, glerslípun og speglagerð, hattasaum, hljóðfærasmíði, leturgröft, myndskurð og steinsmíði.
„Fáir hafa lokið sveinsprófi í þessum iðngreinum frá árinu 2000 og telja má líklegt að sumar þeirra séu ekki lengur til staðar í atvinnulífinu eða hafi tekið slíkum breytingum að ekki teljist lengur forsendur fyrir löggildingu þeirra. Áður en ráðist er í hugsanlegar breytingar er mikilvægt að skoðuð verði sú þekking og hæfni sem krafist er til tiltekinna iðnstarfa sem og að haft verði samráð við hlutaðeigandi stjórnvöld og alla hagsmunaaðila,“ segir í skýrslunni.
Þá leggur nefndin til að löggiltar iðngreinar verði framvegis tilgreindar í iðnaðarlögum í stað reglugerðar eins og nú er reyndin, þannig að það verði Alþingi en ekki ráðherra sem taki ákvörðun um það hvort lögvernda skuli tiltekna iðngrein.
Loks leggur nefndin til að ákvæði um eftirlit, viðurlög og kæruleiðir verði endurskoðuð.
Innlent »
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent Þingið ákveði löggildingu iðngreina
- Föstudagur, 15. júlí 2011, Innlent Ekki skammtímalausnir til að lækka olíuverð
- Miðvikudagur, 19. janúar 2011, Innlent Starfsmannalög verði endurskoðuð
- Laugardagur, 4. febrúar 2012, Innlent Vill allsherjarendurskoðun
- Miðvikudagur, 25. maí 2011, Innlent ESB endurskoði bann við innflutningi selaafurða
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































