Fréttaskýring: Málshöfðun verði neysluhlé afnumið

stækka

mbl.is/Eggert Jóhannesson

Morgunblaðið Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is

Allir félagsmenn í Félagi leikskólakennara, sem starfa hjá Leikskólum Reykjavíkurborgar, missa 25% af yfirvinnugreiðslum neysluhlés 1. apríl næstkomandi. Það á síðan að fella niður hjá þeim í áföngum eftir það.

Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara (FL), segir þá hafa mótmælt þessu harðlega. „Málshöfðun er í undirbúningi og við erum búin að tilkynna Reykjavíkurborg það formlega að ef af verður munum við leita réttar okkar.“

Haraldur segir það liggja ljóst fyrir að aldrei hafi verið samið um niðurfellingu þessarar greiðslu. Leikskólakennarar í Reykjavík hefðu ekki samþykkt kjarasamningana fyrir jól á þeim forsendum.

Þrjár skrifuðu ekki undir

Lilja Eyþórsdóttir, leikskólastjóri hjá Klettaborg í Reykjavík, ákvað að skrifa ekki undir uppsagnarbréf í nafni stöðu sinnar og senda þeim starfsmönnum sínum sem eru í FL.

„Ég veit að við vorum þrjár sem sendum ekki félögum í Leikskólakennarafélaginu þetta bréf,“ segir Lilja aðspurð. Hver og einn leikskólastjóri hafi tekið sjálfstæða ákvörðun. Starfsmenn hennar fengu samt sem áður bréf með uppsögn neysluhlés, frá næsta yfirmanni fyrir ofan Lilju. Hún telur að með niðurfellingu greiðslunnar sé Reykjavík að brjóta gegn jafnræðisreglu og taldi sér því ekki stætt á að skrifa undir bréf sem mismunaði starfsmönnum hennar á þennan hátt.

„Málið, að mínu mati, snýst um að það er ekki verið að fella neysluhléið niður hjá öllum starfsmönnum leikskólanna, sem fengu það á sínum tíma, allir jafnt. Heldur eingöngu hjá félagsmönnum í Félagi leikskólakennara,“ segir Lilja. Hinir starfsmenn leikskólanna, sem séu í fimm stéttarfélögum, haldi allri neysluhlés-greiðslunni.

Hún segir aðspurð að hlutfall leikskólakennara í FL, innan leikskólans sé tæp 30% af starfsmannafjölda. „Þannig að í mínum huga er þetta gríðarlegt ójafnræði.“

Lilja segir málið ekki snúast um hver eigi að sitja með börnunum í hádegistíma. Neysluhlé hafi verið sett á árið 2007 jafnt á alla starfsmenn sem höfðu sömu forsendur. Það felst í því að vera í vinnunni á ákveðnum tíma dagsins og borða með börnunum. Leikskólakennarar sem ætli að taka sér hádegishlé, þurfi að lengja sinn vinnutíma sem nemur því. Orðið „neysluhlé“ sé yfirvinna í formi 10 tíma. „Það voru forsendurnar. Óháð því hvaða stéttarfélagi þeir tilheyrðu,“ segir Lilja.

Höfðu tækifæri til að bóka

Hún gagnrýnir að Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi beri það fyrir sig að gerður hafi verið samningur við FL sem feli í sér að með þeim kjarahækkunum sem samið var um dytti neysluhléið hjá félagsmönnum í FL út. „Grundvallaratriðið er að það er engin bókun um þetta í kjarasamningum og ef Reykjavíkurborg hefði viljað setja þetta sem skilyrði fyrir þessum samningum þá hafði hún algjörlega fullt frelsi til að setja fram bókun sína sem sveitarfélag inn í kjarasamninga um að þetta stæði til. En þau gerðu það ekki. Þar af leiðandi lít ég svo á sem leikmaður að það hafi ekki verið samið um það. Enda hefðu félagsmenn hér í Reykjavík þá varla samþykkt slíka samninga.“

Á betri launum en hinir

Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, segir búið að ákveða að færa neysluhlés-greiðslur leikskólakennara í Reykjavík niður í áföngum í tengslum við launahækkanir. „Það þýðir að þeir verða betur launaðir en aðrir leikskólakennarar. Út samningstímabilið,“ segir Bjarni. Alltaf hafi verið skýrt í umræðum af hálfu Reykjavíkuborgar að greiðslan félli niður ef samningurinn yrði samþykktur. Um það vísar Bjarni aðspurður til orða mannauðsstjóra borgarinnar. Bjarni segir ekki rétt að verið sé að mismuna starfsmönnum leikskóla með niðurfellingu greiðslunnar hjá leikskólakennurum, þar sem þeir hafi fengið umtalsvert meiri kjarabætur en önnur stéttarfélög.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Í Nauthólsvík í dag.

Veðrið leikur við landsmenn

16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um Hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
1 dekk 640/13 til sölu.
Ónotað dekk 640/13 til sölu á 5þúsund kall. uppl.8691204...
Kawasaki KLE 500
Til sölu Kawasaki árgerð 2007, ekið 6035km. Allt í einum pakka,hjól, jakki, bux...
Skoda Octavia árg. 2005 til sölu
Skoda Octavia, nýskráður í desember 2005 til sölu. Ekinn 117.212 km. Diesel T...
M. BENZ C 240
M. Benz C 240 4matic Árg. 2003, ekinn 175 þ. km, bensín, sj...
 
Okkur vantar liðsauka
Heilbrigðisþjónusta
Okkur vantar liðsauka Fótaa...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...