Mega ekki fá nýja púða strax
Þær konur, sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum, geta ekki fengið nýja púða um leið og PIP-púðarnir verða fjarlægðir Reuters
Þær konur, sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum, geta ekki fengið nýja púða um leið og PIP-púðarnir verða fjarlægðir Ekki er talið óhætt að setja strax nýja púða þar sem þeir leku gætu hafa ert vefi í líkama kvennanna. Þetta segir sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu.
„Fyrstu tölur frá Krabbameinsfélaginu, sem sér um ómskoðun þessara kvenna, benda til þess að margar kvennanna virðist vera með leka púða,“ segir Anna Björg Aradóttir, sviðsstjóri eftirlits og gæða hjá Landlæknisembættinu.
„Læknisfræðilegt mat bendir til þess að þessir leku púðar erti meira en aðrir og því er alls ekki ráðlegt að setja nýja púða strax. Konurnar verða að bíða á milli aðgerða, ef þær kjósa að fá nýja púða.“
Anna Björg segir að ekki sé hægt að segja til um hversu langur sá tími gæti verið, það sé persónubundið, væntanlega hafi púðarnir lekið mismikið og konurnar misviðkvæmar fyrir ertingu. „Það sést í rauninni ekki fyrr en í aðgerðinni, þegar púðarnir verða fjarlægðir, hvernig þetta lítur út.“
Anna Björg segir að hugsanlega gætu einhverjar konur, sem nú bera PIP-púða, ekki hafa orðið fyrir neinni ertingu og gætu þá jafnvel fengið nýja púða í sömu aðgerð og hinir verða fjarlægðir í.
„En það verður ekki gert á Landspítalanum. Tilboð ríkisins hljómar upp á að láta fjarlægja púðana þar, ekkert annað. Konur geta auðvitað látið fjarlægja púðana á eigin kostnað hjá lýtalækni og ef hans mat er að setja megi nýja púða í brjóstin í sömu aðgerð, þá er það hans læknisfræðilega mat og á faglega ábyrgð viðkomandi læknis.“
Innlent »
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Innlent Allir brjóstapúðar fjarlægðir
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Innlent Læknar ekki sammála
- Föstudagur, 3. febrúar 2012, Innlent PIP-fyllingar verði fjarlægðar
- Fimmtudagur, 22. desember 2011, Innlent Ráðlagt að ræða við lækni
- Miðvikudagur, 8. febrúar 2012, Innlent Fá ekki nýja púða í sömu aðgerð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































