Leggja til takmarkanir á auglýsingum RÚV

Útvarpshúsið við Efstaleiti. stækka

Útvarpshúsið við Efstaleiti. mbl.is/Árni Sæberg

Í drögum nefndar á vegum menntamálaráðherra um endurskoðun laga um RÚV er m.a. lagt til að settar verði takmarkanir á sjónvarpsauglýsingar, sem munu skerða tekjur RÚV af birtingu auglýsinga um 15%.

Þá kemur einnig fram í frumvarpsdrögunum að skilið skuli á milli fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu og annarrar starfsemi. Gert verði ráð fyrir að öll starfsemi, sem ekki fellur undir hið fyrrnefnda fari fram í dótturfélagi Ríkisútvarpsins og falli undir lögsögu samkeppnisyfirvalda.

Nefnd mennta- og menningarmálaráðherra um endurskoðun laga um Ríkisútvarpið hefur skilað af sér drögum að frumvarpi til laga um Ríkisútvarpið. Þau fara nú í opið samráðsferli með birtingu á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is, þar sem öllum gefst kostur að kynna sér efni þeirra og skila athugasemdum sínum og ábendingum til ráðuneytisins.

Að því loknu verður farið yfir allar athugasemdir og þær hafðar til hliðsjónar við undirbúning endanlegs frumvarps sem ráðherra leggur fyrir Alþingi í byrjun mars.

  Helstu nýmæli í drögunum eru, samkvæmt frétt frá ráðuneytinu:

  •  Aukin áhersla er lögð á almannaþjónustuhlutverk Ríkisútvarpsins og hlutverki þess og skyldum lýst á ítarlegri hátt en í gildandi lögum, einkum með tilliti til samfélagslegs-, lýðræðislegs- og menningarlegs hlutverks.
  • Takmarkanir á sjónvarpsauglýsingum, sem skerða munu tekjur Ríkisútvarpsins af birtingu auglýsinga um 15%.
  • Innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi renni óskiptar til Ríkisútvarpsins.
  • Skilið verði á milli fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu og annarrar starfsemi. Gert er ráð fyrir að öll starfsemi, sem ekki fellur undir hið fyrrnefnda fari fram í dótturfélagi Ríkisútvarpsins og falli undir lögsögu samkeppnisyfirvalda.
  • Mælt er fyrir um sérstaka vernd í starfi fyrir starfsmenn fréttastofu og dagskrárgerðarmenn til að tryggja sjálfstæði þeirra í starfi.
  • Lagðar eru til breytingar á skipan og fyrirkomulagi við val á stjórn Ríkisútvarpsins. Mennta- og menningarmálaráðherra tilnefnir formann stjórnar og starfsmannasamtök Ríkisútvarpsins tilnefna einn fulltrúa. Aðrir stjórnarmenn, fimm að tölu, verða tilnefndir af valnefnd, sem skipuð verði fulltrúum Alþingis, Bandalags íslenskra listamanna og samstarfsnefnd háskólastigsins. Tilgangurinn er að tryggja að í stjórn skipist fulltrúar með breiða þekkingu og/eða reynslu sem áskilin verði í lögum.
  • Mælt er fyrir um aukið aðgengi sjón- og heyrnarskertra að fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu.
  • Umsjón með eignarhluta ríkisins í Ríkisútvarpinu færist frá fjármálaráðherra til mennta- og menningarmálaráðherra.
  • Skýrar er mælt fyrir um skil á milli verksviðs stjórnar og útvarpsstjóra en gert er í gildandi lögum.
  • Mat á frammistöðu Ríkisútvarpsins á sviði fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu verði í höndum fjölmiðlanefndar.

Veittur er frestur til að gera athugasemdir við frumvarpsdrögin fram til 18. febrúar 2012. Óskað er eftir að athugasemdir verði settar skilmerkilega fram og með vísan til tiltekinna greina frumvarpsins, þegar það á við.

Athugasemdir sendist í tölvupósti á: postur@mrn.ismeð efnislínunni: "Breytingar á lögum um Ríkisútvarpið".

Taka mið af tillögum starfshóps frá árinu 2010

 Nefnd um endurskoðun laga um Ríkisútvarpið var skipuð þann 10. mars 2011.

Með erindisbréfi var henni falið að vinna nýtt frumvarp þar sem tekið er mið af tillögum starfshóps mennta- og menningarmálaráðherra um almannaútvarp á Íslandi frá byrjun árs 2010 og athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA við núgildandi lög um Ríkisútvarpið ohf. nr. 6/2007 ásamt samningi um útvarpsþjónustu í almannaþágu.

Jafnframt var nefndinni ætlað að taka afstöðu til hvort auka þyrfti sjálfstæði Ríkisútvarpsins, sem fjölmiðils í almannaþágu og hvort stofna ætti sérstakt dótturfélag um þá starfsemi, sem ekki félli undir fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu.

Þá var nefndinni ætlað að leita leiða til að auka gagnsæi í rekstri Ríkisútvarpsins, auka lýðræði í stjórnarfyrirkomulagi þess, leita leiða til að auka sjálfstæði og starfsöryggi starfsmanna Ríkisútvarpsins við fréttir og tengda dagskrárgerð, fjalla um ábyrgð mennta- og menningarmálaráðherra á opinberu hlutafélagi um rekstur Ríkisútvarpsins, fjalla um hlutverk stjórnar og skipunar hennar auk þess að greina kosti og galla þess að breyta rekstrarformi Ríkisútvarpsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.

Þóra opnar skrifstofu

16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »
Í Nauthólsvík í dag.

Veðrið leikur við landsmenn

16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um Hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hobby 560 kmfe kojuhús til sölu árg 2007
Til Sölu Hobby 560 kmfe Exclusive,, útvarp sjónvarp dvd ,sólarsella, boiler ,álf...
Upphengi fyrir reiðhjól á rennibraut
Til sölu upphengi fyrir reiðhjól á rennibraut. rennibraut 3 metra með 10 krókum...
HONDA ACCORD EXECUTIVE 2,4 i-VTEC 2006 - SKIPTI ÓDÝRARI
Honda Accord Tourer Executive 2,4 i-VTEC 2006. Sjálfskiptur, ekinn aðeins 78 þ. ...
15 FM SUMARHÚS
15 fm sumarhús úr þéttum viði â€" fæst me...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...