Afsökunarbeiðni til Kópavogsbúa
Ásdís Ólafsdóttir, sem átti frumkvæði að stofnun Y-lista Kópavogsbúa, segist í algjörri andstöðu við nýjan meirihluta í bænum. Hún sendir Kópavogsbúum afsökunarbeiðni. „Þetta er sorglegt,“ segir hún og hefur ákveðið að segja sig úr flokknum.
Í yfirlýsingu, sem ber yfirskriftina „Afsökunarbeiðni til Kópavogsbúa, vegna myndunar nýs meirihluta í Kópavogi“, segir Ásdís að í nýja meirihlutanum sé Y-listi Kópavogsbúa sem hún hafi átt frumkvæði að því að stofna.
„Grundvallaratriðið var að reyna að vinna eins vel og við gætum fyrir Kópavogsbúa. Í framhaldi af því voru sett grunngildi sem við öll ætluðum að starfa út frá. Þar vó þyngst siðbót í stjórnsýslu og að bæjarstjórinn yrði ópólitískur – faglega ráðinn,“ skrifar Ásdís.
Nú hafi það gerst að Y-listinn hefur tekið „stóra u-beygju frá sínum grunngildum“, skrifar Ásdís, undir forystu sjálfstæðismanna með Ármann Kr. Ólafsson sem oddvita flokksins og hans stuðningsmanna.
Barðist á móti með kjafti og klóm
Svo segir í yfirlýsingunni:
„Ég hef reynt að berjast á móti þessu innan Y-listans með kjafti og klóm og lenti í minnihluta. Stærsti fjórflokkurinn sem virðist hafa náð yfirhöndinni, þar á meðal vegna afskipta forystunnar á landsvísu ætti að skammast sín og vona ég að kjósendur muni eftir því í næstu kosningum. Hér hafa átt sér pólitísk hrossakaup og fylgir spillingin yfirleitt á eftir með tilheyrandi kostnaði fyrir bæjarfélagið.
Ykkur Kópavogsbúa sem kusu okkur vegna okkar grunngilda vil ég biðja innilegrar afsökunar sem og aðra Kópavogsbúa sem héldu að loforð stæðu hjá stjórnmálaafli. Ég er verulega leið yfir þessu og mun segja mig af Y-listanum. Þetta er sorglegt.“
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 11. febrúar 2012, Innlent Enginn flótti af Y-lista
- Mánudagur, 13. febrúar 2012, Innlent Fimm segja skilið við Y-lista
- Miðvikudagur, 15. febrúar 2012, Innlent Stjórn Týs ánægð með Rannveigu
- Þriðjudagur, 24. janúar 2012, Innlent Y-listi sleit ekki viðræðum
- Föstudagur, 3. febrúar 2012, Innlent „Þetta gengur ágætlega“
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































