Allir þurftu að slá af
Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki og Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa á blaðamannafundinum. Morgunblaðið/Ómar
Allar leiðir voru reyndar þegar kom að meirihlutaviðræðum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Y-lista Kópavogsbúa. Allir þurftu að slá af kröfum sínum en traust hefur myndast milli bæjarfulltrúanna sex og allir fara saman í samstarfið. Þetta kom fram á kynningarfundi nýs meirihluta í Kópavogi.
Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna og verðandi bæjarstjóri og Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista Kópavogsbúa, kynntu meirihlutann á fundi síðdegis í dag. Meðal þess sem þau sögðu var, að þetta samtarf væri ábyrgt af fulltrúum flokkanna og með því væru bæjarfulltrúar að rækja skyldur sínar.
Nokkuð hefur verið rætt um það, að Y-listinn lagði áherslu á það fyrir síðustu kosningar að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur færu frá völdum í bænum. Þá var það krafa að bæjarstjórinn yrði ópólítískur. Rannveig svaraði þessu á fundinum þannig, að um væri að ræða lítið framboð sem ekki væri hægt að ætlast til að fengi allt sem það vildi. Áfram verði unnið fyrir bæjarbúa þó svo að markmið flokksins hafi ekki öll náðst í þessari atrennu.
Spurður út í það hvers vegna Ármann Kr. verði bæjarstjóri, sagði hann sjálfur að Guðrún Pálsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri, hafi átt undir högg að sækja hjá fyrrverandi meirihluta og það hefði ekki verið gott veganesti. Þá sé bæjarstjórastarfið flókið og nokkra mánuði hefði tekið fyrir óreyndan bæjarstjóra að komast inn í starfið. Kjörtímabilið sé nánast hálfnað og því hafi verið betra að pólitískur bæjarstjóri tæki við sem hafi verið lengi í bæjarstjórn.
Ármann sagði að allir flokkar hefðu verið tilbúnir að ræða við Sjálfstæðisflokk en kostunum hefði fækkað þar sem Samfylkingin og Vinstri grænir gerðu kröfu um að unnið yrði með báðum flokkunum. Sjálfstæðisflokkurinn hefði verið tilbúinn í tveggja flokka stjórn með Samfylkingunni.
Þá hafi Y-listinn komið að þegar engir aðrir kostir hafi verið eftir á borðinu. Rannveig sagðist vona að flokkurinn beri með sér ferska vinda inn í samstarf flokka sem hafi lengi verið við völd í Kópavogi. Hún sagði að það barn hefði eignast afkvæmi og þroskast síðan þá, og með nýja samstarfinu.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent Ármann verður bæjarstjóri
- Laugardagur, 11. febrúar 2012, Innlent Enginn flótti af Y-lista
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent Gefur eftir kröfu um ópólitískan bæjarstjóra
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Innlent Samfylking og VG „á kantinum“
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent Náðu saman um málefnasamning
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































