Áttum of mikið af hlutabréfum
Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, sagði á fundi um lífeyrissjóðamál hjá SFR, að eftir á að hyggja hefði hlutur innlendra hlutabréfa verið of stór í eignasafni sjóðsins.
Haukur sagði á fundinum eignaskiptingu sjóðsins hafa verið á þann veg að stærsti hluti hans hefði verið í skuldabréfum ríkis og sveitarfélaga og sjóðfélagalán eða 34,7%, síðan hafi erlend hlutabréf verið 26,8%, innlend hlutabréf 15,9% og loks skuldabréf fyrirtækja 9,8% og skuldabréf lánastofnana 8,5%. Eftir á að hyggja sagði hann að líklega hefði hlutur innlendra hlutabréfa hafa verið of mikill, enda kom það á daginn að sá hluti féll að mestu, auk skuldabréfa lánastofnana og fyrirtækja.
Haukur sagði að hlutur erlendra hlutabréfa hefði nánast staðið í stað en hlutur skuldabréfa ríkis og sveitarfélaga hefði stækkað mikið frá hruni.
Haukur svaraði spurningu trúnaðarmanna SFR um hinar svokölluðu boðsferðir starfsmanna að örugglega hefði mátt gera ýmislegt öðruvísi svona eftir á að hyggja, líklega hefði ekki verið rétt hjá honum að ákveða að láta viðskiptafyrirtæki lífeyrissjóðsins greiða fyrir heimsóknir starfsmanna sem fóru til að kynna sér málefni og stöðu viðskiptavina sjóðsins. Aðspurður sagðist hann verða fyrstu manna til að segja af sér ef baklandið treysti honum ekki lengur, hins vegar hefði ekkert komið í ljós í skýrslunni varðandi tap sjóðsins sem hann hefði ekki greint frá áður. Hans hlutverk frá árinu 2008 hefði verið og væri enn að takmarka tjónið sem af hruninu hlaust og hann væri enn að því.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 6. febrúar 2012, Innlent Ögmundur vildi fjárfesta innanlands
- Þriðjudagur, 22. maí 2012, Innlent Sjóðurinn tæmist á 15 árum
- Mánudagur, 6. febrúar 2012, Innlent Ekki tilefni til að víkja
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent Voru ekki á varðbergi
- Miðvikudagur, 11. janúar 2012, Innlent Þyrfti 7,8 milljarða króna á ári í 40 ár
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































