Endurbætur á Klettaskóla
Þessar stúlkur brostu út að eyrum við fyrstu skólasetningu Klettaskóla í fyrra. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson
Ráðist verður í nýja viðbyggingu og endurbætur á Klettaskóla, nýjum sameinuðum sérskóla í Reykjavík. Til stendur að koma þar upp 3.400 fermetra viðbyggingu með íþróttaaðstöðu og sundlaug sem þjóna mun skólanum.
Þá er gert ráð fyrir að íþróttafélög fatlaðra geti nýtt íþróttasal og sundlaugina. Jafnframt verður eldra húsnæði breytt til að það henti betur starfsemi skólans. Frístundastarf, sem í dag er í leigðu húsnæði, mun flytjast inn í skólann að framkvæmdum loknum.
Húsnæði skólans mun stækka um helming við þessar framkvæmdir, úr tæplega 3.000 fermetrum í 6.340 fermetra. Heildarkostnaður við framkvæmdir er áætlaður um 1.970 milljónir króna og er gert ráð fyrir að hönnun og framkvæmdir við byggingu fari fram á árunum 2012-2015 og endurgerð á eldra húsnæði fari fram á árunum 2015-2016.
Þegar framkvæmdum lýkur verður öll starfsemi skólans á einum stað, en nú er nemendum ekið bæði í sund og frístund.
Klettaskóli þjónar öllu landinu og annast ráðgjöf vegna nemenda með sérþarfir í öðrum grunnskólum, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Skólalóðir endurbættar
Á næsta ári stendur einnig til að gera endurbætur á skólalóðum við Hamraskóla, Réttarholtsskóla og leikskólana Árborg og Laugasól. Jafnframt verður ráðist í annan áfanga við endurbyggingu lóðar við Seljaskóla. Samhliða þessum endurbótum á skólalóðum verður ráðist í ýmsar framkvæmdir á lóðum leikskólanna Barónsborgar, Hólaborgar, Nóaborgar og Stakkaborgar. Þá verða gerð boltagerði við Foldaskóla og Breiðagerðisskóla. Gert er ráð fyrir að þessar framkvæmdir muni kosta 270 milljónir króna.
Borgarráð samþykkti tillögur um þessar framkvæmdir á fundi sínum í dag.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 23. maí 2012, Innlent Skólalóðir borgarinnar endurbættar
- Föstudagur, 9. mars 2012, Innlent KS fjármagnar skólabyggingu
- Fimmtudagur, 8. september 2011, Innlent Framkvæmdum flýtt við Norðlingaskóla
- Miðvikudagur, 21. mars 2012, Innlent 5.500 ársverk í opinberum framkvæmdum
- Fimmtudagur, 22. desember 2011, Innlent Útisundlaug við Sundhöllina
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































