Hlaut 6,5 milljóna rannsóknastyrk

Þorvaldur Skúli Pálsson er fyrsti Íslendingurinn til að hljóta EliteForsk rannsóknarstyrkinn. stækka

Þorvaldur Skúli Pálsson er fyrsti Íslendingurinn til að hljóta EliteForsk rannsóknarstyrkinn. Ljósmynd/Páll Magnús Skúlason

Íslenskur doktorsnemi Danmörku, Þorvaldur Skúli Pálsson, hlaut í dag 6,5 milljóna rannsóknarstyrk frá ráðuneyti rannsókna, nýsköpunar og æðri menntunar í Danmörku, fyrstur Íslendinga. Ráðherrann og Jóakim Danaprins afhentu styrkinn að viðstöddu fjölmenni í Ny Carlsberg Glyptotek í Kaupmannahöfn.

Um er að ræða styrk sem kallast EliteForsk rejsetipendium og var fyrst veittur árið 2007. Hann er ætlaður mjög hæfileikaríkum doktorsnemum, sem skulu nýta hann til lengri námsdvalar við bestu rannsóknaraðstæður sem völ er á. Styrkþegar eru valdir úr hópi allra doktorsnema í Danmörku og eru á þessu ári 17 að tölu. Þorvaldur Skúli er fyrsti Íslendingurinn sem hlýtur styrkinn, sem nemur 300.000 dönskum krónum, eða 6.550.000 íslenskra króna.

Rannsakar verki í mjaðmagrind

Þorvaldur Skúli vinnur að verkefni sem ber heitið „Pelvic Girdle Pain? Sensory and Motor Aspects“. Þar rannsakar hann nokkra þætti sem hugsanlega liggja til grundvallar verkjum frá mjaðmagrind. Fyrri rannsóknir benda til að það sé talsverð skörun milli mjóbaksverkja og verkja frá mjaðmagrind, en í hvorugu tilvikinu vita menn hvers vegna sumir þróa með sér langvinna verki sem ekki lagast við meðferð.

Besta dæmið um verki af þessu tagi eru mjaðmagrindarverkir á meðgöngu, en þá verða allar konur fyrir margskonar líkamlegum breytingum  og finna til verkja af ýmsu tagi, sem telst fullkomlega eðlilegt. Það er hins vegar ekki ljóst hvers vegna líkamleg einkenni hverfa ekki þegar allar líkamlegar breytingar sem tengjast meðgöngu eru gengnar til baka. Vonir standa til að niðurstöðurnar veiti vísbendingar um hvernig haga beri meðferð við verkjum af þessu tagi, þannig að árangur verði betri en hingað til.

Nýtir styrkinn í Ástralíu

Styrkinn hyggst Þorvaldur Skúli nota til að standa undir kostnaði við rannsókn sem verður framkvæmd við Curtin University of Technology í Perth í Ástralíu, í samvinnu við rannsóknahóp sem hefur talsverða reynslu af rannsóknum á mjóbaks- og mjaðmagrindarverkjum.

Þorvaldur Skúli lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni, BS-prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands og meistaraprófi frá Curtin-tækniháskólanum í Perth. Hann leggur nú stund á doktorsnám við Álaborgarháskóla.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.

Þóra opnar skrifstofu

16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »
Í Nauthólsvík í dag.

Veðrið leikur við landsmenn

16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um Hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »
Finnur.is
Sófasett (2+1)
Lítið notað og vel með farið sófasett 2 +1. Stærð sófa 170cm. Verð 35.000 S. 863...
15,2 fm bjálkahús - Verð kr. 725.000
Húsið er úr 44mm bjálkum. Húsið er ósamsett og til afhendingar strax. Áætlaður...
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
Handfærasökkur
Eigum til handfærasökkur 2,6 kg á lager, einnig nýsmíði og viðhald úr ryðfríu st...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...