Hringdi í pabba sinn eftir hjálp
Breskur ævintýramaður, sem sóttur var ásamt félaga sínum af björgunarmönnum á Vatnajökul í gærmorgun, hringdi í föður sinn á Bretlandi eftir aðstoð. Faðirinn hringdi síðan í bresku strandgæsluna og þaðan barst beiðni um aðstoð til Neyðarlínunnar.
Tjald þeirra fauk um koll og súlurnar brotnuðu. Þeir vöfðu þá teppum utan um sig en voru farnir að óttast aðstæður. Lítið var eftir af rafhlöðunni í gervihnattasíma þeirra og ákváðu þeir því að hringja í föður Hibberts, til Portsmouth í Hampshire.
Þetta segir maðurinn, Alex Hibbert, í viðtali við Mail Online. Hibbert er vanur fjalla- og útivistarmaður
Faðirinn, Richard Hibbert, er foringi í breska hernum og hann hafði þegar samband við strandgæsluna. Það var skömmu eftir miðnætti í gær. Strandgæslan tilkynnti þá Landhelgisgæslunni ástandið og að lokum var haft samband við Neyðarlínuna.
„Alex var mjög rólegur þegar hann hringdi,“ segir faðir hans í samtali við Mail Online. „Ég sagði honum að hann fengi aðstoð, ég hringdi í strandgæsluna sem brást skjótt við.“
„Björgunin tókst vel og þegar ég talaði við hann í gærkvöldi var hann á leiðinni í heitt bað,“ sagði Hibbert eldri.
Alex Hibbert sagði í samtali við Mail Online að þeir félagarnir hefðu ferðast samtals um 50 kílómetra um jökulinn. Hann er vonsvikinn yfir að hafa ekki getað klárað ferðina, en hyggur á aðra ferð eins fljótt og hægt er.
Talsmaður bresku strandgæslunnar segir í samtali við Mail Online að gæslan sé vissulega ánægð með að hafa getað veitt aðstoð. En hann bendir jafnframt á nauðsyn þess að ferðalangar kynni sér neyðarnúmer í þeim löndum sem þeir heimsækja.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Haraldsson Hvað voru þeir að gera? -
Guðjón Sigþór Jensson Að leita langt yfir skammt
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. apríl 2011, Innlent Andlát: Finnbogi Guðmundsson
- Föstudagur, 11. nóvember 2011, Innlent Bróðir ferðamannsins kominn
- Miðvikudagur, 8. febrúar 2012, Innlent Sækja hrakta ferðamenn
- Laugardagur, 5. nóvember 2011, Innlent Andlát: Ólafur Oddsson
- Mánudagur, 7. febrúar 2011, Innlent Enginn sagðist hafa ekið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































