Krefst jöfnunar lífeyrisréttinda

Verkafólk og sjómenn eru meðal félagsmanna í Lífeyrissjóði Vestfirðinga. stækka

Verkafólk og sjómenn eru meðal félagsmanna í Lífeyrissjóði Vestfirðinga.

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfjarða segir að hefja verði strax vinnu við að jafna lífeyrisréttindi landsmanna. Hún telur að skýrsla um lífeyrissjóðina sýni fram á að mikið óréttlæti felist í núverandi stöðu þessara mála.

„Því ekki eingöngu þurfa okkar sjóðfélagar að taka á sig skerðingu vegna tapaðra fjármuna okkar sjóða heldur einnig vegna aukinnar skattbyrgði sem lögð er á almennu sjóðina svo hægt sé að viðhalda óbreyttu réttindakerfi opinberu sjóðanna. Verum þess minnug að eitt af stóru loforðum ríkisstjórnarinnar frá kjarasamningunum 2011 var jöfnun lífeyrisréttinda landsmanna. Niðurstöður skýrslunnar staðfesta með óyggjandi hætti að þá vinnu verður að hefja strax,“ segir í ályktun frá stjórninni.

Stjórn verkalýðsfélagsins ræddi í vikunni um skýrslu úttektarnefndar lífeyrissjóðanna.   Stjórnin fagnar útkomu skýrslunnar og hvetur sjóðsfélaga til málefnalegar og gagnýninnar umræðu um niðurstöðu hennar. Ljóst sé að gríðarlegir fjármunir hafi tapast við fall bankanna og harmar stjórn Verk Vest að hinn almenni sjóðfélagi skuli þurfa að taka á sig skerðingar vegna þessa.
 
„Stjórn Verk Vest hvetur stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga til að leggja spilin á borðið og upplýsa hinna almenna sjóðfélaga um hvert hið raunverulega tap sjóðsins á tímabilinu 2005 - 2010 var, og hve mikil skerðing á réttindum hefur orðið þegar til lengri tíma er litið. Við skulum leggja alla hræsni til hliðar og vera þess minnug að við sjálf gerðum þá kröfu að okkar sjóður skilaði sambærilegri eða jafnvel hærri ávöxtun en raunhæft var að gera til langtímasparnaðarforms, eins og lífeyrissparnaður vissulega er. Eftir því sem ávöxtunin varð hærri urðu líkurnar á djúpri niðursveiflu einnig meiri ef fjármálakerfi landsins fengi áfall líkt og gerðist í bankahruninu 2008.
  
Þrátt fyrir þá erfiðu stöðu sem lífeyrissjóðirnir hafa staðið frammi fyrir frá árinu 2008 má ekki gleymast að Lífeyrissjóði Vestfirðinga tókst þrátt fyrir allt að standa hrunið að mestu af sér, sem er meira en hægt er að segja um banka og sparisjóði landsmanna. Þetta sýnir ársreikningur sjóðsins fyrir árið 2010 borið saman við árin fyrir hrun.  Þar má sjá að hrein eign til greiðslu lífeyris í lok árs 2010 var 26,2 milljarðar króna og hafði lækkað um 1,2 milljarða króna frá árslokum 2007. Þessi mikli viðsnúningur réttlætir þó ekki það mikla tap sem sjóðurinn varð fyrir. En nánast ógjörningur var að bregðast við þeim áföllum án þess að eitthvað yrði undan að láta.

Stjórn Verk Vest stefnir að því að kalla saman fulltrúaráð félagsins í Lífeyrissjóði Vestfirðinga þegar línur eru farnar að skýrast betur, til að fara yfir niðurstöður úttektarnefndarinnar. Stjórn félagsins telur það skyldu þess að sjá til að sjóðfélagar verði upplýstir á mannamáli um stöðu sjóðsins og þeim þannig sýnt fram á hvernig stjórn sjóðsins hafi brugðist við til að koma í veg fyrir að slík staða geti komið upp að nýju.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.

Þóra opnar skrifstofu

16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »
Í Nauthólsvík í dag.

Veðrið leikur við landsmenn

16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um Hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sumarhús 45-55m2
Óska eftir sumarhúsi á hvaða byggingastigi sem er til fluttnings. Myndir og upp...
Hermannaúlpa
Hermannaúlpa til sölu, 2 stk. L- XL. Upplýsingar í síma: 8935005...
ROTÞRÆR, VATNSGEYMAR OG ALVÖRU MOLTUGERÐ
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru moltugerðarkassar Rotþr...
Honda CR-V 2008 Til Sölu
Til sölu Honda Cr-v skráð 10.1.2008 Ekin 90.xxx þ km. Með öllum aukabúnaði nem...
 
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...