Landinn byrjar rólega í drykkjunni

mbl.is/Heiðar

Sala á áfengi var 2,3% minni í janúar í ár en sama tímabil í fyrra. Í lítrum talið er munurinn 25 þúsund lítrar. Samdráttur í sölu er talsvert meiri í bjór en léttvíni.

Þannig dróst sala á bjór saman um 3% á meðan rauðvín og hvítvín dregst saman minna en 1%. Hins vegar varð 2,2% aukning á sölu blandaðra drykkja.

Ef litið er lengra aftur í tímann og salan í janúar í ár borin saman við söluna fyrir tveimur árum þ.e. 2010 þá seldust tæplega 8% færri lítrar í ár. Sala á ókrydduðu brennivíni og blönduðum drykkjum hefur dregist verulega saman.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert