Skorað er á forsætisráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir svarar ekki bréfum frá SSNV vegna stöðu í atvinnu- og byggðarmálum. mbl.is/Golli
Byggðaráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að svara bréfum í nýlegri ályktun frá því í dag. Er forsætisráðherra ámæltur í ályktuninni fyrir að hafa ekki svarað kalli landshlutans og stjórnar SSNV um aðgerðir í atvinnu- og byggðamálum svæðisins.
Byggðaráðið fjallaði í dag um samskipti Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og forsætisráðuneytisins vegna bréfa sem SSNV hefur ítrekað sent forsætisráðherra, en ekki fengið svör við. Fyrra bréfið var sent 21. nóvember 2011 og fjallaði um alvarlega stöðu á Norðurlandi vestra og ósk um samstarf um sértækar aðgerðir í landshlutanum. Seinna bréfið var sent 31. janúar 2012 og var ítrekun um bréfið frá því í nóvember.
Bókun byggðaráðs frá því í dag er svohljóðandi:
„Skorað er á forsætisráðherra og oddvita ríkisstjórnar Íslands að svara ákalli landshlutans og stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra um aðgerðir í atvinnu- og byggðamálum. Stjórn SSNV hefur undanfarna mánuði ítrekað óskað eftir fundi með forsætisráðherra án árangurs til að ræða mjög erfiða stöðu byggða á Norðurlandi vestra og leggja fram tillögur til lausna á þeim vanda. Ekki er hægt að una slíkum samskiptum á milli stjórnsýslustiga og ámælisvert að æðstu ráðmenn landsins skuli koma þannig fram við heilu landshlutana. Á skömmum tíma hafa verið flutt burtu eða lögð af 45 opinber störf í Skagafirði og í ljósi nýsamþykktra fjárlaga stefnir í að fyrir árslok hafi 65 stöðugildi horfið úr héraði á árunum 2008-2012. Ábyrgð stjórnvalda er því mikil eins og þær tölur sýna og hægt að tengja fólksfækkun beint við stjórnvaldsaðgerðir sem bitnað hafa á svæðinu. Við það bætist veruleg skerðing á fjárframlögum til verkefna og þjónustu á svæðinu umfram aðra landshluta. Ekki þolir neina bið að gripið verði til aðgerða til snúa þessari þróun við með samhentu átaki stjórnvalda og heimamanna.“
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 28. febrúar 2012, Innlent Störfum hefur fækkað
- Fimmtudagur, 16. febrúar 2012, Innlent Bíða enn svars frá forsætisráðherra
- Föstudagur, 11. febrúar 2011, Innlent Samstarf um atvinnumál
- Föstudagur, 10. febrúar 2012, Innlent Boðuð á fund í Reykjavík
- Föstudagur, 23. mars 2012, Innlent Tillögur fyrir ráðherra
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































