Um 850 jarðskjálftar í janúar

Kort af jarðskjálftum í janúar. stækka

Kort af jarðskjálftum í janúar. Mynd/Veðurstofa Íslands

Heldur dró úr skjálftavirkni í Mýrdalsjökli í janúar miðað við undanfarna mánuði. Um 140 skjálftar mældust í jöklinum og þar af voru um 85 innan Kötluöskjunnar. Alls mældust um 850 jarðskjálftar með SIL-mælakerfi Veðurstofu Íslands í síðasta mánuði.

Flestir jarðskjálftar mánaðarins áttu upptök við Húsmúla á Hengilssvæðinu en þar mældust um 250 smáskjálftar. Stærsti skjálfti mánaðarins varð að kvöldi 3. janúar, Ml 3,9, rétt vestan Krýsuvíkur og fannst víða á Reykjanesskaga, höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi. Frá þessu er greint á vefsvæði Veðurstofunnar.

Á Hengilssvæðinu var mesta virknin við Húsmúla eins og undanfarna mánuði. Um 250 smáskjálftar mældust, stærstu um tvö stig. Nokkrir tugir smáskjálfta mældust annars staðar á Hengilssvæðinu, í Ölfusi og Flóa. Á Suðurlandsundirlendinu mældust nokkrir tugir skjálfta, stærstu um tvö stig. Flestir áttu upptök á Hestvatnssprungunni. Stakur jarðskjálfti mældist við Heklu þann 21. janúar, Ml 0,8 að stærð. GPS- og þenslumælingar sýndu engar breytingar við Heklu á þessum tíma.

Undir og við Vatnajökul mældust 32 jarðskjálftar. Um helmingur þeirra átti upptök undir Lokahrygg og flestir hinna voru við Kistufell og norðaustan í Bárðarbungu. Stærsti jarðskjálftinn á svæðinu var 2,4 stig með upptök við Kistufell. Við Öskju mældust fimm jarðskjálftar og 15 við Herðubreið, allir minni en 1,6 að stærð. Við Hlaupfell, norður af Upptyppingum, mældust 33 jarðskjálftar og urðu flestir þeirra á tímabilinu 13.-15. janúar. Stærsti skjálftinn þar var 1,8 stig. Við suðurbrún landgrunnsins á móts við Breiðamerkurdjúp mældust 12 jarðskjálftar. Flestir þeirra urðu að kvöldi þess 13. janúar og mældist stærsti skjálftinn 2,7 stig.

Á Torfajökulssvæðinu mældust 27 skjálftar. Allt voru þetta mjög litlir skjálftar, stærstu rétt um Ml 1 að stærð. Í Langjökli og næsta nágrenni mældust alls átta skjálftar. Einn skjálfti mældist í vestanverðum Hofsjökli og annar um 20 kílómetra norður af Hofsjökli. Allt voru þetta frekar litlir skjálftar en þeir stærstu mældust rétt norðan við Geitlandsjökul í suðvesturhluta Langjökuls og voru þeir rétt rúmlega Ml 2 að stærð.

Í nágrenni Kröfluvirkjunar mældust fimm skjálftar og þrír við Þeistareyki, einn undir Vaglafjalli sunnan Ljósavatnsskarðs og tveir undir Lágheiði. Fyrir norðan land mældust 111 jarðskjálftar, flestir í Öxarfirði og austan við Grímsey. Stærsti skjálftinn varð klukkan 21:46 þann 3. janúar um 26 kílómetra austur af Grímsey, 2.9 að stærð.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.

Þóra opnar skrifstofu

16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »
Í Nauthólsvík í dag.

Veðrið leikur við landsmenn

16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um Hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ - TILBOÐ Dömuskór úr leðri með korks...
Heimagisting Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á góðum stað á Akureyri. Einungis er um að ræða g...
TOYOTA LAND CRUISER 100 VX, 2004
Til sölu "Gullmoli" aðeins ekinn 87Þ. km. einn með öllu. Dísel Uppl. í síma 899...
TRAVEL LITE HÚSIN
Travel Lite Húsin eru í mörgum stærðum og henta á...
 
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...