Vill sveigjanlegt eftirlaunakerfi
Ingvar P. Guðbjörnsson - ipg@mbl.isJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í dag að hún vildi að eftirlaunakerfið væri sveigjanlegt þegar kæmi að starfslokum og upptöku eftirlauna. Í þessu samhengi vísaði hún til íslenska eftirlaunakerfisins.
Leiðtogafundi níu forsætisráðherra (Northern Future Forum) lauk í Stokkhólmi í dag. Auk Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra tóku forsætisráðherrar Svíþjóðar, Bretlands, Noregs, Danmerkur, Finnlands, Eistlands, Lettlands og Litháens þátt í ráðstefnunni ásamt sendinefndum viðkomandi landa. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Í tilkynningunni segir að meginviðfangsefni fundarins hafi verið hlutur kvenna í leiðandi störfum og rekstri fyrirtækja og hlutur eldri borgara á vinnumarkaði framtíðarinnar.
Jóhanna sagði á fundinum að ef mildari leiðir bæru ekki árangur gæti þurft að grípa til frekari aðgerða til að jafna hlut kvenna og karla í leiðandi störfum og stjórnum fyrirtækja.
Þá greindi hún fundinum frá því að í ríkisstjórnum sínum hefði verið jafnræði meðal kynjanna og að nú væru konur fleiri en karlar. Jóhanna sagðist einnig vera fylgjandi því að taka upp lög um 40% kynjakvóta í stjórnum og ráðum, líkt og Norðmenn gera á næsta ári.
Félagsleg skilyrði fjölskyldna bar einnig á góma í ræðu Jóhönnu sem sagði nauðsynlegt að gera breytingar á þeim til þess að þessi ákvæði gætu orðið að veruleika. Nefndi hún mæðra- og feðraorlof í því samhengi.
Var spurð út í eftirlaunamál á Íslandi
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, spurði Jóhönnu í lok fundarins um sérstöðu Íslands varðandi ríkan þátt aldraðra á íslenskum vinnumarkaði, en Reinfeldt hefur lagt fram hugmyndir um að hækka eftirlaunaaldur verulega í Svíþjóð.
Jóhanna svaraði til að Ísland hefði sérstöðu og að engin áform væru um að hverfa af þeirri braut sem mörkuð hefði verið. „Mín skoðun er sú að eftirlaunakerfið eigi að gefa kost á sveigjanleika þegar nálgast eftirlaunaaldur. Á Íslandi gefst fólki kostur á að seinka eftirlaunaaldrinum frá 67 til 72 ára aldurs og hækka lífeyrinn þar með árlega um 6 prósent,“ sagði Jóhanna eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu.
Forsætisráðuneytið segir að staða Íslendinga í málaflokkunum tveimur hafi vakið athygli á fundinum sem og þau erindi sem flutt voru á vegum íslensku sendinefndarinnar.
Næsti fundur Northern Future Forum verður haldinn að ári í Lettlandi.







































