8 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 8 mánaða fangelsi fyrir að beita fyrrverandi sambýliskonu sína ofbeldi. Manninum var jafnframt gert að greiða henni 400.000 kr. í skaðabætur.
Árásin átti sér stað í íbúð mannsins í Reykjavík í október 2010. Honum var gefið að sök að hafa tekið konuna hálstaki, skellt henni utan í veggi og hrint í gólf. Allt með þeim afleiðingum að hún hlaut heilahristing, tognun á háls-, brjóst- og lendhrygg, yfirborðsáverka á hálsi og höfði, mar á vinstra augnsvæði, vinstri öxl og upphandlegg og mjóbaki.
Fram kemur í dómnum að konan og maðurinn hafi slitið sambúð sama dag og árásin var gerð.
Maðurinn neitaði sök. Hann viðurkenndi að konan hefði komið heim til sín. Hún hefði hins vegar dottið í gólfið þegar hann reyndi að beina henni út og hélt henni á lofti.
Í dómi héraðsdóms segir, að samkvæmt vætti læknis þá komi áverkarnir heim og saman við lýsingu konunnar á árás mannsins. Það sé því hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hafi veist að konunni á heimili sínu og veitt henni þá áverka er greinir í ákæru. Með því sé sannað að hann hafi skellt konunni utan í veggi og hrint henni í gólf.
Samkvæmt áverkavottorði greindist konan bæði með yfirborðsáverka og tognun á hálsi. Samrýmist það því að maðurinn hafi tekið brotaþola hálstaki, svo sem hún hafi staðhæft. Það verði lagt til grundvallar niðurstöðu. Samkvæmt þessu verði maðurinn sakfelldur samkvæmt ákæru.
Maðurinn, sem er 25 ára gamall, hefur tvívegis áður verið dæmdur til fangelsisrefsingar fyrir líkamsárás. Árið 2008 var hann dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir. Árið 2009 var hann svo aftur sakfelldur fyrir líkamsárás og var refsing fyrri dóms tekin upp og dæmd með því broti. Var maðurinn þá dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi.
Héraðsdómur segir að árásin hafi verið fólskuleg og maðurinn eigi sér engar málsbætur.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 14. apríl 2011, Innlent Skellti höfði manns gegnum glerrúðu
- Miðvikudagur, 16. mars 2011, Innlent Kastaði postulínsfati í konu
- Fimmtudagur, 12. janúar 2012, Innlent Kastaði skó í barnsmóður sína
- Fimmtudagur, 3. febrúar 2011, Innlent Fær annað tækifæri
- Fimmtudagur, 3. nóvember 2011, Innlent Dómur mildaður yfir árásarmanni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































