Áfallin staða A-deildar í plús

Fjármálaráðuneytið. stækka

Fjármálaráðuneytið. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Áfallin staða A-deildar LSR, þ.e. skuldbindingar umfram eignir, nam í árslok 2010 tæpum 4,2 milljörðum króna eða 2,5% af eignum. Þetta segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá fjármálaráðuneytinu og Fjársýslu ríkisins.

Undanfarna daga hefur verið fjallað um meðferð á skuldbindingum ríkissjóðs gagnvart A-deild LSR. Því hefur verið haldið fram að þær væru vantaldar í ríkisreikningi um sem nemur 47 milljörðum króna miðað við árslok 2010, en þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar um meðferð fjárhagslegra skuldbindinga ríkisins.

Í yfirlýsingu fjármálaráðuneytisins og Fjársýslu ríkisins um þetta segir:

„Í fyrsta lagi er gerð grein fyrir umræddum skuldbindingum í skýringum með ríkisreikningi  2010 þar sem fjallað er um ábyrgðir utan efnahags.  Þar segir m.a.  að heildarstaða sjóðsins sé neikvæð um 47,4 milljarða króna, en það er sú fjárhæð sem falla myndi á ríkissjóð á komandi áratugum miðað við að áfram séu greidd óbreytt iðgjöld vegna núverandi sjóðsfélaga til ellilífeyrisaldurs og að þeir ávinni sér réttindi í samræmi við það.

Var þessi skýring sett fram í samráði við Ríkisendurskoðun, sem jafnframt áritaði reikninginn.

2.         Í öðru lagi er rétt að fram komi að samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt á stöðu sjóðsins nam áfallin staða A-deildar LSR, þ.e. skuldbindingar umfram eignir, tæpum 4,2 milljörðum króna í árslok 2010. Sú fjárhæð nemur 2,5% af eignum.  Áfallnar skuldbindingar sýna stöðu sjóðsins á viðkomandi uppgjörsdegi og taka mið af iðgjöldum sem þegar hafa verið greidd.  Það eru áfallnar skuldbindingar sem eru almennt lagðar til grundvallar í reikningsskilum þegar slíkar ábyrgðir eru færðar til til skuldar.

3.         Í þriðja lagi kemur fram í lögunum um A-deild LSR að haga skuli iðgjöldum til sjóðsins í samræmi við skuldbindingar hans.  Það, að heildarstaða sjóðsins sé neikvæð um 47,4 milljarða króna, bendir til að hækka þurfi iðgjöldin í framtíðinni til að mæta auknum skuldbindingum.  Þessi niðurstaða, sem byggir á viðteknum tryggingafræðilegum matsaðferðum, er vitanlega háð óvissu um ávöxtun eigna sjóðsins á komandi áratugum og er breytingum háð.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »
Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.

Þóra opnar skrifstofu

16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um Hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ormar í veiðina frá Óþekktarormum
Nú er maðkur í mysunni og ormar til sölu! Úrvals laxaormar feitir og vænir á ...
Góður hrossaskítur í garðinn
Er á höfuðborgarsvæðinu. Þú getur sótt frítt eins og þú vilt, eða ég komið með k...
SUBARU IMPREZA WAGON GX 4wd ÁRG. 2005 VERÐ 990.000
SUBARU IMPREZA WAGON GX ÁRGERÐ 2/2005. EK. 170 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEILSÁRSD...
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ - TILBOÐ Dömuskór úr leðri með korks...
 
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...