Aldagamlar hefðir í hættu
Hætta er á að aldagamlar hefðir við veiðar og eggjatöku glatist með friðun fimm tegunda svartfugls. Þetta segir stjórn Drangeyjarfélagsins í bréfi sem sent var umhverfisráðherra og öllum þingmönnum.
Starfshópur umhverfisráðherra skilaði fyrir skömmu skýrslu um verndun og endurreisn svartfuglastofna. Ein af meginniðurstöðum nefndarinnar er að friða skuli langvíu, álku, stuttnefju, teistu og lunda fyrir allri veiði næstu fimm árin auk þess sem lagt er til að eggjataka verði bönnuð í bjargi.
Í bréfi stjórnar Drangeyjarfélagsins segir að óviðunandi sé að banna veiðar á umræddum fuglum á meðan takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um stærð stofnanna. „Án upplýsinga verða ekki teknar vitrænar ákvarðanir. Fari svo að rannsóknir verði ekki auknar er ljóst að náttúran verður látin njóta vafans og veiðar bannaðar árum saman og þá að öllum líkindum að óþörfu. Nytjar á gæðum náttúrunnar eru eðlilegar hverju nafni sem þær nefnast.“
Þá harmar stjórnin að ekki hafi verið leitað til félagsins enda þekki þeir einna best fuglabjörgin við Ísland. „Svo virðist sem skýrsluhöfundar hafi einungis treyst þeim takmörkuðu rannsóknum sem fyrir liggja og talið ástæðulaust að afla sér upplýsinga hjá þeim mönnum sem alist hafa upp við björgin, slíkt getur vart talist til faglegra vinnubragða. Þá er sú hætta yfirvofandi að veiðar og eggjataka verði alveg bannaðar til lengri tíma og þá er stór hætta á því að aldagamlar hefðir við veiðar og eggjatöku glatist.“
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 11. apríl 2012, Innlent Breytt umhverfi hlunnindanýtingar
- Þriðjudagur, 14. febrúar 2012, Innlent Friðun of harkaleg aðgerð
- Miðvikudagur, 22. febrúar 2012, Innlent Svartfuglafriðun fyrir ESB?
- Þriðjudagur, 31. maí 2011, Innlent Vilja ekki leyfa lundaveiði
- Þriðjudagur, 3. janúar 2012, Innlent Vilja friða 5 tegundir af svartfugli
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































