Bleikjueldi í Galtalæk ekki háð umhverfismati
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eldi á allt að 200 tonnum af bleikju á ári í Galtalæk, Rangárþingi ytra, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Fyrirtækið Íslensk matorka hefur rekið fiskeldisstöðina í Galtalæk frá árinu 2010.
Um er að ræða stækkun á fiskeldisstöðinni í Galtalæk. Eldi þar hefur verið starfrækt á grundvelli starfsleyfis fiskeldistöðvarinnar í Fellsmúla frá árinu 2000 er heimilaði 60 tonna ársframleiðslu af urriða- og laxaseiðum en þar að auki hefur verið þar eldi á bleikju. Starfsleyfið rann út í apríl 2010 en í október 2011 veitti Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fiskeldisstöðinni í Galtalæk nýtt leyfi til framleiðslu á 20 tonnum á ári. Íslensk matorka ehf. sækist nú eftir að fá leyfi til að framleiða allt að 200 tonn af bleikju á ári.
Í gögnum framkvæmdaaðila kemur fram að gengið verði frá frárennsli á þann hátt að útilokað verði að eldisfiskur hafi samgang við villtan fisk í Galtalæk og dauður fiskur berist þangað með frárennsli frá eldisstöðinni. Ellefu fiskeldisker hafi verið notuð við eldið fram að þessu, en í fyrirhuguðum framkvæmdum verði fjögur þeirra fjarlægð og eitt langt straumker, svokallað lengdarstraumsker, verði byggt í þeirra stað. Jafnframt verður reist síló á lóð fiskeldisins og úr því verður fóðri miðlað í fiskeldiskerin.
Bleikjuseiði frá seiðaeldisstöð Íslenskrar matorku ehf. í Fellsmúla, verða alin upp í sláturstærð á Galtalæk, sem taki 8-12 mánuði. Með núverandi mannvirkjum er mögulegt að framleiða um 120 tonn af bleikju á ári. Með fyrirhuguðum endurbótum, sem m.a. gerir ráð fyrir bættri nýtingu á vatni og hreinsun á frárennsli, verður hægt að framleiða mun meira af bleikju án þess að úrgangslosun út í Galtalæk aukist eða starfsemin þurfi meira vatn til fiskeldisins miðað við það sem nú sé.
Samkvæmt 14. gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. má kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (sbr. 25. gr. laga nr. 131/2011). Kærufrestur er til 12. mars 2012.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 22. janúar 2011, Innlent Þorskeldi þarf í umhverfismat
- Miðvikudagur, 11. apríl 2012, Innlent Eldið ekki háð umhverfismati
- Miðvikudagur, 21. september 2011, Innlent Kemíra þarf ekki umhverfismat
- Mánudagur, 5. desember 2011, Innlent Vilja heimild til að framleiða 1.500 tonn á ári
- Mánudagur, 7. nóvember 2011, Innlent Vaxandi áhugi á laxeldi síðustu misseri
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































