Boðuð á fund í Reykjavík
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa reynt að fá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á fund vegna alvarlegra stöðu í byggðamálum. Samtökin hafa nú verið boðuð á fund í Reykjavík ásamt öðrum fulltrúum landshlutasamtaka.
Líkt og fram kom í frétt Morgunblaðsins í dag sendu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) bréf til forsætisráðuneytisins með ósk um að hitta forsætisráðherra þann 21. nóvember í fyrra.
Erindið var að óska eftir aðstoð og þátttöku í aðgerðarhópi stjórnvalda og heimamanna til að bregðast við fólksfækkun og versnandi lífsgæðum íbúa í landshlutanum. Fyrr á síðasta ári hafði ríkisstjórnin brugðist við svipuðum aðstæðum tveggja annarra landshluta með því móti að setja saman aðgerðahóp og ráðast í aðgerðir í samráði við heimamenn, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Á sama tíma var unnið að nýju vinnulagi í samskiptum tveggja stjórnsýslustiga í gegnum landshlutasamtökin. Þetta voru sóknaráætlanir landshluta sem unnar voru á grunni stefnumarkandi ríkisstjórnarsamþykktar undir heitinu Ísland 2020.
Föstudaginn 3. febrúar sl. var fulltrúum SSNV boðið til fundar í forsætisráðuneytinu sem haldinn skyldi 9. febrúar sl. Það boð var afþakkað, samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að beiðnum SSNV um að fá forsætisráðherra norður á fund hafi ekki verið svarað.
„Þegar verkum aðgerðahópana á Suðurnesjum og Vestfjörðum var lokið var ákveðið að stunda ekki lengur slík viðbragðstengt vinnulag en leggja krafta Stjórnarráðsins alls í að vinna með sveitarfélögum að gerð sóknaráætlana landshluta.
Útfærsla þeirra var samþykkt til tíu ára af ríkisstjórninni, en árið 2011 var tilraunaár. Á því tilraunaári áttu fjögur ráðuneyti samskipti við öll átta landshlutasamtökin í gegn um svonefnt stýrinet. Kallað var eftir verkefnum og forgangsröðun frá sveitarfélögum í gegnum landshlutasamtök.
Ferlið er hugsað sem valdefling fyrir sveitarfélög og tækifæri fyrir landshluta að hafa áhrif á forgangsröðun á fjárlögum. Sóknaráætlanir landshluta eru hluti af nýsköpun innan stjórnsýslunnar þegar kemur að úthlutun almannfjár til almannahags. Frá marsmánuði 2011 til desembermánaðar sama ár hélt stýrinet ráðuneytanna fjölda funda með landshlutasamtökum um framtíðarfyrirkomulag úthlutunar almannafjár í krafti sóknaráætlana. Samtök íslenskra sveitarfélaga komu markvisst að gerð sóknaráætlananna og liðkuðu fyrir samvinnu.
Auk þess héldu innanríkisráðherra og velferðarráðherra fundi að beiðni ríkistjórnar með öllum landshlutaformönnum og framkvæmdastjórum 25. nóvember 2011 vegna niðurskurðar á opinberum útgjöldum. Auk þess var rætt nýtt vinnulag sóknaráætlana og möguleikar sem í því felast," segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Tvö verkefni til Norðurlands vestra
Ráðherranefnd um ríkisfjármál samþykkti í nóvember 2011 að 11 verkefni af sóknaráætlunum landshluta færu inn á fjárlög 2012. Um var að ræða fjárfestingar- og rekstrarverkefni í öllum landshlutum. Flest verkefnin eru til 4 ára og er áætlað að þau muni kosta alls um 460 m.kr. á tímabilinu. Af þessum 11 verkefnum voru tvö á Norðurlandi vestra; dreifnám í Húnaþingi vestra og lagning hitaveitu frá Reykjum við Húnavelli að Skagaströnd. Samanlagður kostnaður er áætlaður rúmar 90 m.kr.
„Fulltrúar SSNV hafa, eins og önnur landshlutasamtök, verið þátttakendur í því lærdómsrferli sem sóknaráætlanir landshluta eru. Bæði stjórnsýslustigin eru að tileinka sér nýjar leiðir við úthlutun opinbers fjár til framkvæmda í landshlutum. Vinnan að því er samvinna. Markmiðið með ferlinu hefur verið að efla landshlutana og koma reglu og staðfestu á samskipti Stjórnarráðsins við sveitarfélögin í gegnum landshlutasamtök. Fulltrúar allra landshlutasamtaka hafa verið boðaðir á fund í innanríkisráðuneytinu þann 23. febrúar næstkomandi til þess að ræða þá útfærslu sem stjórnvöld hafa lagt til við sóknaráætlanir landshluta 2013-2020. Þar vill stýrinet ráðuneytanna ræða enn frekari styrkingu á sóknaráætlanaferlinu og breytingar til framfara,“ segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins.





































